
Tryggingastofnun
Tryggingastofnun er þjónustustofnun sem gegnir lykilhlutverki í velferðarþjónustu Íslands. Hlutverk stofnunarinnar er að framfylgja lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni langveikra barna.
Hjá TR starfa um 100 starfmenn með hátt menntunarstig og mikla fagþekkingu. Starfsfólki er boðið upp á nútímalegt vinnuumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi, sveigjanlegur vinnutími og mikil samvinna.
Lögfræðingur
Hefur þú áhuga á að starfa í krefjandi lagaumhverfi þar sem reynir á góða þekkingu á stjórnsýslurétti og öguð og vönduð vinnubrögð? Þá gætir þú átt heima í lögfræðiteymi TR. Við erum að leita eftir lögfræðingi í afleysingar frá 1. janúar n.k. í rúmt ár.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla stjórnsýsluerinda og álitsgerða.
- Lögfræðileg ráðgjöf á sviði almannatrygginga og vegna réttinda á milli landa.
- Eftirfylgni með framkvæmd laga.
- Ritun greinargerða til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna kærumála.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullnaðarpróf í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.
- Góð þekking á sviði stjórnsýsluréttar og Evrópuréttar er kostur.
- Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti.
- Gott vald á ensku í ræðu og riti.
- Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð skilyrði.
- Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni eru skilyrði.
Advertisement published30. October 2026
Application deadline9. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (6)

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun

Lögfræðingur á sviði skattaréttar
Deloitte Legal

Sérfræðingur í innkaupum
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE

Lögfræðingur
Hafrannsóknarstofnun

Lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál
Forsætisráðuneytið