Deloitte Legal
Deloitte Legal
Deloitte Legal

Lögfræðingur á sviði skatta-, samninga- og félagaréttar

Deloitte Legal er framsækin og alþjóðleg lögmannsstofa sem þjónustar fjölbreyttan hóp fyrirtækja í margvíslegum atvinnugreinum á öllum helstu sviðum fyrirtækjalögfræði. Deloitte Legal er jafnframt samstarfsaðili Deloitte á heimsvísu sem samanstendur af 457.000 sérfræðingum og er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar og tengdrar þjónustu.

Deloitte Legal leitar að áhugasömum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi félagsins, sem samanstendur af hópi lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. Hjá Deloitte á heimsvísu starfa að auki yfir 2.500 lögfræðingar, sem saman stefna að því að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Lögfræðiráðgjöf og skjalagerð á sviði skatta-, samninga- og félagaréttar.
  • Lögfræðiráðgjöf við stór sem smá fyrirtæki.
  • Samvinna með öðrum ráðgjafateymum, hér heima og erlendis.
  • Stuðningur við markaðssókn félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
  • Að lágmarki þriggja ára reynsla af lögfræðistörfum á sviði skatta-, samninga- og félagaréttar og ráðgjafar við fyrirtæki er kostur.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Lestur og skilningur ársreikninga er ákjósanlegur.
  • Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og geta til að tjá sig, í ræðu og riti.
Advertisement published9. March 2026
Application deadline25. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags