Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Leikskóli tækifæranna leitar að þér!

Á Arakletti fer fram mikið og metnaðarfullt starf, þar sem áherslan er á samskipti og að vera góðir vinir, ásamt ásamt sköpun og sjálfstæði barnanna. Við erum í góðum tengslum við náttúru og nærumhverfi og einnig er gott samstarf á milli leikskóla í svetiarfélaginu og mikill stuðningur við starfsfólk. Við erum stolt af að geta boðið uppá húsnæði sem uppfyllir nútíma kröfur og starf sem er í rífandi þróun, þar sem við erum meðal annars að innleiða Heillaspor í samstarfi við Miðstöð Menntunar og Skólaþjónustu. Á ári hverju eru um 40-50 börn og 12-15 kennarar sem koma saman á Arakletti og sköpum við saman leikskóla tækifæranna - bæði fyrir börn og starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ef þú vilt vera í okkar hópi, þá væri þín helsta ábyrgð:

·       Að vinna að uppeldi, menntun og faglegri umönnun barnanna.

·       Vera leiðandi í að efla nám barnanna með þáttöku í leik.

·       Skráning og ígrundun m.a. á tengslum og leik barna.

·       Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs, gerð skólanámsskrár, mati á starfsemi leikskólans, innleiðingu á Heillasporum og fleiri verkefnum.

·       Teymisvinna, foreldrasamstarf og fleiri verkefni samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og aðalnámsskrá leikskóla.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.

·       Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf kennara.

·       Reynsla af uppeldis – og kennslustörfum með ungum börnum.

·       Sjálfstæð og skipulög vinnubrögð.

·       Góðir samvinnu- og samskiptahæfileikar.

·       Góð íslenskukunnátta.

 

Advertisement published13. May 2026
Application deadline2. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Strandgata 21, 450 Patreksfjörður
Type of work
Professions
Job Tags