Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg

Leikskólakennarar óskast á Hulduberg

VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ LEIKSKÓLAKENNURUM Í LEIKSKÓLASTARF FULLT STARF SEM GETUR HAFIÐ STÖRF 05. JANÚAR

Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.

Í Huldubergi eru 102 börn á aldrinum eins til fjögurra ára. Í leikskólastarfinu er lögð sérstök áhersla á tilfinningalegt öryggi, hlýju, umhyggju og góðvild. Leitast er við að skapa rólegt og streitulaust umhverfi þar sem festa og sveigjanlegt dagskipulag fara saman og tekið er mið af þörfum, þroska og getu hvers barns.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsfólks í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgist vel með velferð barnanna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar, gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða aðra sambærilega menntun.
  • Áhugi, menntun, reynsla og hæfni í starfi með ungum börnum.
  • Sjálfstæði og metnaður í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi samskiptafærni.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Advertisement published17. November 2026
Application deadline8. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Lækjarhlíð 3, 270 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags