

Leiðandi framendaforritari
Aurbjörg leitar að reynslumiklum framendaforritara í leiðandi hlutverk til að móta lausnir sem hafa raunveruleg áhrif á fjárhagslega velferð fólks. Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að skapa framúrskarandi notendaupplifun, hefur metnað til að drífa verkefni áfram og vill hafa áhrif á bæði tæknilegar ákvarðanir og framtíð fjártæknilausnarinnar www.aurbjorg.is.
Í þessu hlutverki munt þú:
-
leiða þróun framenda Aurbjargar og móta notendaupplifun lausnarinnar
-
taka virkan þátt í hönnun og þróun nýrra vara og virkni
-
hafa áhrif á tæknilegar ákvarðanir, arkitektúr og áframhaldandi þróun tæknilausna
-
taka þátt í að móta vöruna í nánu samstarfi við stjórnendur og teymi
-
bera ábyrgð á verkefnum frá hugmynd að fullbúinni lausn
Við leggjum ríka áherslu á að þróa einfaldar, vel úthugsaðar og notendamiðaðar lausnir þar sem gæði, notendaupplifun og tæknilegur metnaður fara saman.
Þú passar vel í hlutverkið ef þú:
-
hefur að minnsta kosti fimm ára reynslu af hugbúnaðarþróun
-
hefur yfirgripsmikla reynslu af React og nútíma framendaþróun
-
vinnur sjálfstætt en nýtur þess jafnframt að vera hluti af öflugu teymi
-
hefur frumkvæði og drifkraft til að leiða verkefni áfram
-
hugsar út frá bæði notendum og tæknilegum gæðum
-
hefur áhuga á að þróa lausnir sem hafa raunveruleg áhrif á fólk
-
reynslu af bakendaþróun þó að það sé ekki skilyrði
Hjá Aurbjörgu vinnur þú í litlu og metnaðarfullu teymi þar sem boðleiðir eru stuttar og hugmyndir verða hratt að veruleika. Þú færð raunverulegt svigrúm til að hafa áhrif á vöruna, vinna þvert á ólík fagsvið og taka þátt í að móta lausnir sem þúsundir notenda nýta í daglegu lífi.
Tæknistakkurinn okkar:
Framendi
-
React
-
Next.js
-
TypeScript
-
Vite
-
TanStack Query
-
Tailwind CSS
-
React Native
-
Expo
Bakendi
-
.NET 8
-
C#
-
Kubernetes
-
Docker
-
Dapr
-
Microsoft Azure








