Atmos Cloud
Atmos Cloud
Atmos Cloud

Kerfisstjóri með AI-ofurkrafta

Við hjá Atmos Cloud leitum að Kerfisstjóra sem elskar góðan rekstur en er líka með augun á framtíðinni. Við þurfum manneskju sem stýrir hinu klassíska tæknilandslagi (on-prem og skýjum) af fyllsta öryggi, en mætir til leiks með AI í verkfæratöskunni til að leysa málin hraðar og snjallar. Ef þú færð hroll yfir því að gera sama hlutinn handvirkt tvisvar, þá ertu á nákvæmlega sama stað og við.

Hjá okkur færðu fjölbreytt og krefjandi verkefni þar sem daglega lífið snýst um að tryggja að Microsoft 365 og Azure umhverfi viðskiptavina okkar keyri eins og vel smurð vél. Við höldum fótunum tryggilega á jörðinni þegar kemur að áreiðanleika og traustri þjónustu, en við nýtum gervigreind og sjálfvirkni af fimi til að fljúga aðeins hraðar en hinir.

Þitt hlutverk í geimskipinu:

  • Kerfisstjórnun og traustur rekstur: Þú berð ábyrgð á daglegum rekstri, eftirliti og viðhaldi á tækniumhverfi viðskiptavina okkar (M365, Azure og hybrid/on-prem lausnum).

  • AI í daglegu starfi: Þú nýtir gervigreind af fimi sem daglegan vinnufélaga hvort sem það er til að hraða úrlausn tæknilegra mála, fínpússa PowerShell skriftur eða finna snjallari leiðir til að stýra og sjálfvirknivæða skýjaumhverfi. Þú ert fljótur að tileinka þér nýjustu módelin og tólin sem völ er á á markaðnum hverju sinni.

  • Sjálfvirknivæðing (Automation): Þú leitar stöðugt leiða til að útrýma endurteknum verkefnum. Ef hægt er að tengja kerfi saman með API eða sjálfvirknivæða ferla, þá ert þú á heimavelli.

  • Öryggi og eftirlit: Þú tryggir að kerfi séu uppfærð, örugg og fylgi bestu starfsháttum (Best Practices).
  • Þjónusta og ráðgjöf: Þú hjálpar viðskiptavinum okkar að finna réttu lausnirnar og útskýrir flókna tækni á mannamáli.
Teymið

Við höfum tölvuleikjahetjur, hlaupara, fjalla- og veghjólara, skíðamenn, fluguveiði-amature-a, ræktarunnendur, hestafólk, sundgarpa og kokka. Öll eigum við það sameiginlegt að vera hamingjusamt fjölskyldufólk sem hlakkar til að fá nýjan vin í hópinn.

Fríðindi
  • Sveigjanlegur vinnutími.

  • Einstaklings- og hópa hvatakerfi.

  • Heima internet og farsími.

  • Frábæra vinnuaðstaða í Ármúlanum með kaffi, drykkjum og snakki í úrvalsflokki.

  • Niðurgreiddur hádegismatur.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af kerfisstjórnun: Víðtæk og traust þekking á Microsoft 365 og Azure (reynsla úr MSP umhverfi er mikill kostur).

  • AI-læsi: Þú fylgist vel með þróuninni í AI málum og vinnur með þessi tól daglega í þinni kerfisstjórnun.

  • Sjálfvirkni-genið: Góð þekking á PowerShell, Power platform, Terraform, API tengingum eða öðrum sjálfvirknilausnum.

  • Lausnamiðuð samskipti: Þú getur miðlað tæknilegum lausnum á skýran og þægilegan hátt án þess að missa fólk út í geim.

  • Eldmóður og jákvæðni: Brosið er gjaldmiðill sem hvergi fellur í verði, þú mætir til leiks með góða lund, frumkvæði og vilja til að gera hlutina betur í dag en í gær.

  • Bílpróf og bíll: Fyrir lendingar á staðnum hjá viðskiptavinum.

  • Önnur menntun: Allt sem nýtist á jörðu sem og í geimnum.
Um Atmos Cloud

Við elskum skýjalausnir, til tunglsins og til baka. Atmos Cloud er ört vaxandi fyrirtæki þar sem traust og áreiðanleiki eru í fyrirrúmi. Við erum geimfarar, ekki geimverur – hjá okkur hafa allir rödd og við leggjum mikið upp úr léttleika og góðri þjónustu.

Advertisement published15. June 2026
Application deadline20. July 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Ármúli 1, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.AutomationPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Computer securityPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags