Inkasso
Inkasso

Lausnamiðaður greiðsluráðgjafi óskast!

Við hjá Inkasso leitum að öflugum liðsmanni í þjónustuverið okkar.

Við erum framsækið fyrirtæki sem nýtir tækni til að skapa betri upplifun fyrir viðskiptavini okkar og viðskiptavini þeirra.

Allir geta lent í tímabundnum greiðsluerfiðleikum. Markmið okkar er að þróa og bæta innheimtuþjónustu á Íslandi. Við trúum því að hægt sé að nálgast innheimtu af fagmennsku og virðingu með það fyrir augum að gera mál ekki flóknari en þau þurfa að vera.

Við leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og finna raunhæfar lausnir sem gagnast bæði greiðendum og viðskiptavinum okkar.

Ef þú ert lausnamiðaður, drífandi og tæknilæs einstaklingur sem hefur gaman af mannlegum samskiptum, sýnir frumkvæði í starfi, hefur áhuga á tækni og leggur metnað í að veita framúrskarandi þjónustu þá hvetjum við þig til að sækja um.

Reynsla af bókhaldi eða sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða greiðendur við úrlausn sinna mála
  • Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini Inkasso
  • Símsvörun, tölvupóstur og netspjall
  • Virk þátttaka í þróun verkferla og umbótaverkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sterk þjónustulund og jákvætt viðmót 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að eiga fagleg og lausnamiðuð samskipti við ólíka hagsmunaaðila og byggja upp traust í samskiptum
  • Sterkt tölvulæsi og tölvukunnátta, reynsla við að vinna í ólíkum kerfum og hæfni til að tileinka sér ný kerfi
  • Áhugi á tækni og vilji til að nýta nýjar lausnir, þar á meðal gervigreind og sjálfvirknivæðingu, til að bæta þjónustu og vinnuferla
  • Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, frumkvæði og geta til að taka ábyrgð á eigin verkefnum og árangri
  • Hæfni til að vinna í teymi, deila þekkingu og stuðla að góðu samstarfi
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti
  • Góð tök á ensku
Fríðindi í starfi
  • Frábært samstarfsfólk og mjög sætur skrifstofuhundur sem heitir Kóbí
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Sturta fyrir þá sem vilja koma hjólandi eða hlaupandi í vinnuna
  • Niðurgreiddur hádegismatur frá Maul
  • Morgunkaffi frá Brauð og co. alla föstudaga
  • Vinnutími til kl 15:00 á föstudögum
Advertisement published3. June 2026
Application deadline16. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Laugavegur 182, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags