Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur

Lausar stöður leikskólakennara eða leiðbeinanda

Tjarnarskógur á Egilsstöðum auglýsir lausar til umsóknar stöður leikskólakennara eða leiðbeinanda (tímabundið) ef ekki fást kennarar.

Um er að ræða fjölbreytt og lifandi störf og eru einkunnarorð skólans gleði, virðing, samvinna og fagmennska. Starfshlutfall er umsemjanlegt og eru störfin laus nú þegar.

Næsti yfirmaður er leikskólastjóri Tjarnarskógar.

Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 160 börn á tveimur starfsstöðvum, Skógarlandi og Tjarnarlandi. Leikskólinn Tjarnarskógur vinnur eftir Uppeldi til ábyrgðar og horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum.

Nánari upplýsingar um leikskólann: https://www.mulathing.is/is/thjonusta/menntun/leikskolar/tjarnarskogur

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felur í sér almenna kennslu
  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrá mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra 
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur  í nánu samstarfi við foreldra/forráðarmenn barnanna
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn).  Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfskraftur með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi tímabundið.
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published14. October 2026
Application deadline31. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skógarlönd 5, 700 Egilsstaðir
Tjarnarlönd 10, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Punctual
Work environment
Professions
Job Tags