Icelandia
Icelandia
Icelandia

Launasérfræðingur

Icelandia leitar að öflugum og nákvæmum einstaklingi í starf launasérfræðings. Í boði eru fjölbreytt verkefni í skemmtilegu teymi. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri mannauðs og gæða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn launavinnsla og skráning í launa- og tímaskráningarkerfi.
  • Rýni og frágangur á gögnum tengdum launavinnslu.
  • Afstemmingar.
  • Upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsmanna vegna launagreiðslna og úrlausn mála sem tengjast kjarasamningum, réttindum og skyldum.
  • Samskipti við opinbera aðila varðandi iðgjaldaskil og skilagreinar.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum á sviði launamála.
  • Útgáfa vottorða.
  • Önnur tilfallandi verkefni í tengslum við mannauðs- og kjaramál.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldgóð reynsla af launavinnslu eða menntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Góð þekking á Kjarna er æskileg, kostur að þekkja MyTimePlan.
  • Góð þekking á kjarasamningum er æskileg.
  • Geta til að vinna undir álagi.
  • Mjög góð skipulagshæfni, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Öguð vinnubrögð, nákvæmni og ábyrgðarkennd.
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
  • Frábæra vinnuaðstöðu og sveigjanleika.
  • Niðurgreiddan mat í hádeginu, líkamsræktarstyrk og sálfræðistyrk.
  • Möguleika á þróun í starfi.
Advertisement published4. December 2024
Application deadline15. December 2024
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags