Krikaskóli óskar eftir aðstoðarmanni í eldhús
Laus staða í Krikaskóla í Mosfellsbæ
Krikaskóli er leik- og grunnskóli og starfsemin tekur mið af skólastefnu Mosfellsbæjar um heilstætt uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum. Skólaárið 2023 - 2024 eru um 200 börn á aldrinum 2ja-9 ára í skólanum.
Við óskum eftir að ráða aðstoðarmann í eldhús. Um 100% framtíðarstarf er að ræða. Aðstoðarmaður í eldhúsi vinnur undir leiðsögn matreiðslumanns.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Góð færni í samskiptum
- Aldurstakmark 18 ára eða eldri
- Góð færni í íslensku og
Umsóknarfrestur er til og með 30.september 2024
Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Viktoría Unnur Viktorsdóttir, skólastjóri í síma 578-3400/ 695-4482. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.