NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Kona sem kann prjón eða hekl óskast á kvöld og helgarvaktir

Kona sem kann að prjóna eða hekla óskast á kvöld og helgarvaktir

35 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á kvöld og helgarvaktir.

Æskilegt er að viðkomandi sé 35 ára eða eldri. Eldri konur sérstaklega velkomnar.

Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoða við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.

Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna, föndur og söngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi einnig áhuga á handavinnu.

Athugið að á heimilinu er lítill hundur sem er að byrja í hvolpaþjálfun.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.

Þær vaktir sem eru í boði

Á virkum dögum :

  • Annar hver þriðjudagur 17:45-22:45
  • Eða öll miðvikudagskvöld 18-23
  • Eða öll fimmtudagskvöld 18-23

Og svo líka fjórðu hverja helgi :

  • Föstudag og laugardag 18-23 og sunnudag 20:30-23:30
  • Eða laugardag 12-16
  • Eða sunnudag 12-16
  • Einnig möguleika á ýmsum aukavöktum.

Hæfniskröfur:

  • Þolinmæði.
  • Frumkvæði.
  • Góð samskiptahæfni.
  • Að vera hvetjandi og skapandi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
  • Íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði.

Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • góð íslenskukunnátta
Advertisement published16. September 2024
Application deadline18. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicIntermediate
Location
107 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Professions
Job Tags