
Íþróttafélagið Völsungur
Völsungur er fjölgreina félag sem var stofnað 12. apríl 1927. Félagið heldur úti starfi fyrir iðkendur frá tveggja ára aldri og uppí eldri borgara, allt frá almennri hreyfingu yfir í afreksstarf.

Knattspyrnudeild Völsungs auglýsir eftir þjálfurum yngri flokka
Knattspyrnudeild Völsungs óskar eftir þjálfurum í yngri flokka starf félagsins. Möguleiki er á bæði hluta starfi og fullu starfi eftir samkomulagi. Félagið er tilbúið til að aðstoða þjálfara að sækja sér menntun í knattspyrnuþjálfun. Viðkomandi þjálfarar heyra undir yfirþjálfara knattspyrnudeildar.
Við hvetjum öll til að sækja um óháð kyni.
Frekari upplýsingar veitir Sigurður Valdimar Olgeirsson framkvæmdastjóri Völsungs: [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með skipulagningu æfinga og leikja hjá viðkomandi flokki eða flokkum.
- Umsjón með þátttöku í mótum viðkomandi flokks eða flokka.
- Samskipti við foreldra í gegnum Sportabler.
- Samskipti við foreldrafulltrúa viðkomandi flokks eða flokka vegna skipulagningu móta og/eða keppnisferða
- Samstarf við aðra þjálfara innan knattspyrnudeildar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þjálfaramenntun er kostur.
- Góðir samskiptahæfileikar.
- Jákvæðni, drifkraftur og frumkvæði.
- Áhugi á að takast á við nýjungar og margvísleg verkefni.
- Almenn tölvufærni og hæfni við að tjá sig í rituðu og töluðu máli.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
Advertisement published10. August 2026
Application deadline31. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Auðbrekku 3
Type of work
Skills
Football
Professions
Job Tags

