
Klifurþjálfari óskast í öflugt teymi Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk leitar að jákvæðum og metnaðarfullum klifurþjálfara sem hefur ánægju af því að starfa með börnum og ungmennum.
Starfið felst í þjálfun barna og ungmenna í klifurdeild félagsins. Þjálfari kennir samkvæmt kennsluáætlun Fimleikafélagsins Bjarkar og í samræmi við viðmið og fræðslu Klifursambands Íslands (www.klifursamband.is).
Starfshlutfall er eftir samkomulagi og vinnutími að mestu síðdegis og á kvöldin. Starfið getur því hentað vel samhliða námi eða öðru starfi.
Við leitum að ábyrgum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í faglegu og skemmtilegu starfi félagsins og stuðla að öruggu, hvetjandi og jákvæðu æfingaumhverfi fyrir iðkendur.
- Þjálfun barna og ungmenna í klifri
- Skipulagning og undirbúningur æfinga í samstarfi við yfirþjálfara
- Kennsla á grunntækni, hreyfingum og færni í klifri
- Aðlögun æfinga að aldri, getu og þörfum iðkenda
- Að tryggja að öryggisreglum og verklagi félagsins sé fylgt
- Að skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi æfingaumhverfi
- Samstarf við aðra þjálfara, yfirþjálfara og starfsfólk félagsins
- Þátttaka í viðburðum, mótum og öðrum verkefnum deildarinnar eftir því sem við á
- Góð þekking og reynsla af klifri er nauðsynleg
- Reynsla af klifurþjálfun er æskileg
- Þjálfaramenntun eða viðurkennd þjálfaranámskeið eru kostur
- Þekking á öryggisreglum og öruggum vinnubrögðum í klifri
- Áhugi og hæfni til að starfa með börnum og ungmennum
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Jákvæðni, frumkvæði og samviskusemi
- Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og með öðrum
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Klifursamband Íslands býður meðal annars upp á þjálfaranámskeið í samstarfi við ÍSÍ. Nánari upplýsingar hjá Klifursambandi Íslands
- Skemmtilegt og gefandi starf með börnum og ungmennum
- Sveigjanlegt starfshlutfall eftir samkomulagi
- Starf sem hentar vel samhliða námi
- Öflugt og fjölbreytt starfsumhverfi
- Gott samstarf og stuðningur frá reyndum þjálfurum og stjórnendum
- Tækifæri til starfsþróunar og aukinnar þekkingar á sviði klifurþjálfunar
Icelandic




