Klettur -  sala og þjónusta ehf
Klettur - sala og þjónusta ehf
Klettur -  sala og þjónusta ehf

Klettur - Vélvirki á vélaverkstæði CAT

Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi vélvirkja á verkstæði okkar í Klettagörðum í Reykjavík. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.
Leitum við að aðila sem getur unnið sjálfstætt. Starfið felur í sér vinnu inni á verkstæði sem og á starfsstöðum viðskiptavina við vinnuvélar og tæki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bilagreining á vélum, gírkössum, skiptingum, vökvakerfum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum
  • Almenn viðhaldsvinna, s.s. viðgerðir á vélum, gírkössum, skiptingum, vökvakerfum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum
  • Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda
  • Framfylgja öryggis- og brunareglugerðum
  • Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana
  • Önnur tilfallandi verkefni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fullgild réttindi sem vélvirki
  • Kunnátta til að fara með bilanagreinar, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri er kostur
  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
  • Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni 
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur matur.
  • Sterkt og virkt starfsmannafélag.
  • Íþróttastyrkur.
  • Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins. 
Advertisement published24. April 2026
Application deadline11. May 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Industrial mechanics
Professions
Job Tags