
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði - Reykjavík
Vegna góðrar verkefnastöðu og aukinna umsvifa leitum við að öflugum aðila í bilanagreiningar og viðgerðir á vörubílum og hópferðabílum ásamt tengdum búnaði þeirra.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi bifvélavirkja á vörubílaverkstæði okkar í Klettagörðum í Reykjavík. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu. Um er að ræða fullt starf þar sem vinnutíminn er 8:00-17:00 en þriðju hverja viku frá 15:00-23:30 með fríi á föstudögum á þeim vikum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn viðhaldsvinna s.s. viðgerðir á vélum, gírkassa, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum.
- Bilanagreiningar á búnaði s.s. vélum, gírkössum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum.
- Standsetning nýrra vörubíla og hópferðabíla ásamt ásetningu á ýmsum aukabúnaði.
- Bilanagreiningar og viðgerðir á tengdum búnaði vörubíla s.s. krókheysum, ruslabúnaði, krönum og öðrum ábyggingum.
- Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda.
- Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgild réttindi sem bifvélavirki eða vélvirkjun kostur.
- Sjálfstæð vinnubrögð, góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Kunnátta til að fara með bilanagreinar, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri.
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Gott starfsumhverfi, fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Tækifæri til að þróast í starfi
- Íþróttastyrk & niðurgreiddan mat
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
Advertisement published24. April 2026
Application deadline11. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
MechanicMaster craftsmanIndustrial mechanics
Professions
Job Tags
Other jobs (7)

Klettur - Viðgerðarmaður í loftlausnum
Klettur - sala og þjónusta ehf

Starfsmaður á lager/verslun Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélfræðingur/rafvirki vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur - Vélvirki á vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélvirki/Vélstjóri Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki - Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf
Similar jobs (12)

Sumarstarfsmaður á verkstæði
Rafgeymasalan ehf.

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Vélfræðingur/rafvirki vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur - Vélvirki á vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélvirki/Vélstjóri Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki - Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélstjóri/keyrslumaður í fóðurframleiðslu
Fóðurblandan

Starfsmaður í verksmiðju TDK Foil Iceland ehf á Akureyri.
TDK Foil Iceland ehf

Verkstjóri vélsmiðju á starfsstöð HD á Akureyri
HD Iðn- og tækniþjónusta

Carglass
Carglass

Óskum eftir vélvirkja
Trefjar ehf