

Kirkjugarðar Reykjavíkur - Gufunesgarður
Kirkjugarðar Reykjavíkur leita af metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í framtíðarstarf á sviði umhirðu og jarðsetninga í Gufuneskirkjugarði.
Starfið er mjög fjölbreytt og felur í sér vinnu við almenna umhirðu garðanna ásamt fjölbreyttum verkefnum sem starfsmenn garðanna taka sér fyrir hendur með bros á vör.
Kirkjugörðum Reykjavíkur er umhugað um sitt starfsfólk og leggur ríka áherslu á vellíðan í starfi.
- Viðhald og umhirða garðsins
- Trjáklippingar, trjáfellingar, gróðursetning, þökulagning, sláttur og fl.
- Vinna við fjölmarga þjónustuliði sem garðarnir bjóða upp á
- Verkstjórn með sumarstarfsfólki
- Önnur tilfallandi störf
Í starfinu felst ábyrgð á að þjónustu sé sinnt á faglegan og nærgætinn hátt og að öryggisstöðlum sé fylgt við dagleg störf.
- Menntun á sviði garðyrkju/skrúðgarðyrkju kostur, eða sambærileg menntun
- Áhugi á garðyrkju skilyrði
- Vinnuvélaréttindi I kostur
- Starfið gerir kröfur um handlægni, útsjónarsemi og frumkvæði.
- Færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og geta til að vinna bæði sjálfstætt sem og í teymi.
Kirkjugarðar Reykjavíkur er lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem leggur ríka áherslu á vellíðan starfsfólks. Hjá fyrirtækinu starfa um 30 starfsmenn. Fyrirtækið hefur verið í stefnumótun með það í huga að byggja upp jákvæða ásýnd fyrirtækisins og auka starfsánægju og jákvæða menningu þess.
Framtíðarsýn Kirkjugarða Reykjavíkur er að vera garður allra þeirra sem vilja kyrrð og ró í umhverfi sem einkennist af hlýju, umhyggju og kærleika. Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa opinn faðm gagnvart öllum þeim sem vilja kveðja ástvini sína og varðveita minningar.
Gildin okkar eru VIRÐING - UMHYGGJA - FAGMENNSKA - LIÐSHEILD
Heimasíða Kirkjugarða Reykjavíkur er: https://www.kirkjugardar.is/
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helena Sif Þorgeirsdóttir sviðsstjóri umhirðu og jarðsetninga hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Icelandic


