Hitt húsið
Hitt húsið

Jafningjafræðari í Jafningjafræðslu Hins Hússins 2026

Fræðslu- og forvarnarstarf fyrir ungt fólk

Jafningjafræðsla Hins Hússins auglýsir eftir ábyrgu, metnaðarfullu og skemmtilegu ungu fólki í sumarstarf. Starfið er lifandi, krefjandi og skemmtilegt. Frábært tækifæri fyrir þau sem hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum og hafa góð áhrif út í samfélagið. Jafningjafræðarar starfa í 8 vikur yfir sumarið og fræða meðal annars í vinnuskóla- og félagsmiðstöðvahópum.

Umsókn:

Með umsókninni á að fylgja 2 mínútna myndband. Í þessu myndbandi áttu að segja frá þér sjálfum/ri/u og af hverju þú sækir um starfið.

Ef þú lendir í vandræðum er hægt að sleppa því að senda það inn í gegnum ráðningarvef Reykjavíkurborgar og hlaða upp myndbandinu inni á https://wetransfer.com/ og senda myndbandið í tölvupósti á netfangið [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur og Sameykis.

Starfshlutfall er 100% í 8 vikur.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóna Helga Ástudóttir, verkefnastjóri Jafningjafræðslunnar í Hinu Húsinu, í gegnum netfangið [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fræðsla á vettvangi ungs fólks
  • Fjölbreytt forvarnarverkefni meðal ungs fólks
  • Vera jákvæð og góð fyrirmynd
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 16-19 ára (fædd 2007, 2008 og 2009).
  • Umsækjendur þurfa að hafa lögheimili í Reykjavík.
  • Mikilvægt er að þeir sem verða ráðnir geta unnið allt starfstímabilið (26. maí til 20. júlí).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Advertisement published13. February 2026
Application deadline23. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Rafstöðvarvegur 7, 110 Reykjavík
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags