Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin Ármúla ehf.

Innkaupa- og birgðastjóri

Við leitum að skipulögðum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með víðtæka reynslu af lager- og birgðastjórnun til að fara með yfirumsjón innkaupa og birgðahalds Klíníkurinnar.

Starfið er nýtt og felur í sér tækifæri til að byggja upp innkaupastefnu Klíníkurinnar og heildarskipulag birgðahalds frá grunni, með hagkvæmni og öryggi sjúklinga að leiðarljósi. Viðkomandi stýrir daglegu birgðahaldi ásamt og vinnur náið með starfsmanni í birgðahaldi, klínísku starfsfólki og stjórnendum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og innleiðing innkaupastefnu Klíníkurinnar
  • Yfirumsjón með heildarskipulagi birgðahalds á lager, skurðstofum og deildum.
  • Samræma innkaup og annast samskipti og samninga við birgja með hagkvæmni að leiðarljósi.
  • Pantanir á lækningavörum, rekstrarvörum og lyfjum, ásamt eftirfylgni með afhendingum.
  • Birgðaeftirlit, talningar, eftirlit með fyrningardagsetningum og lágmarksbirgðum.
  • Greining innkaupa og birgðastöðu með það að markmiði að lækka kostnað og draga úr birgðabindingu og rýrnun.
  • Stöðugar umbætur á verklagi.
  • Náið samstarf við starfsmann í birgðahaldi, hjúkrunarfræðinga, skurðstofustarfsfólk og fjármálasvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Víðtæk reynsla af lager- og birgðastjórnun.
  • Reynsla af innkaupum, samningum við birgja og verkstjórn er skilyrði.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla úr heilbrigðisþjónustu eða þekking á lækningavörum er kostur.
  • Rík greiningarhæfni, góður skilningur á rekstri og góð færni í Excel.
  • Þekking á birgðakerfum og straumlínustjórnun (lean) er kostur.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að innleiða breytingar og fá samstarfsfólk með sér.
  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð og góð samskiptahæfni.
  • Íslenskukunnátta er skilyrði.
Advertisement published13. November 2026
Application deadline11. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Ármúli 7, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Stock managementPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Stockroom workPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Quality tracking systems
Professions
Job Tags