
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Innheimtufulltrúi / verkefnastjóri
Laust er til umsóknar starf innheimtufulltrúa/verkefnastjóra á fjármála- og stjórnsýslusviði Borgarbyggðar. Um tímabundna afleysingu er að ræða til eins árs.
Starfsmaður ber ábyrgð á útgáfu reikninga og innheimtu sveitarfélagsins og stofnana þess. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að sinna fjölbreyttum verkefnum á fjármála- og stjórnsýslusviði.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á útgáfu og útsendingu reikninga og umsjón með allri innheimtu sveitarfélagsins og stofnana þess.
- Umsjón með innheimtuaðgerðum.
- Álagning fasteignagjalda og breytingar á álagningu þeirra.
- Upplýsingagjöf og samskipti við forstöðumenn og aðra viðskiptavini.
- Ýmis tilfallandi verkefni og afleysing annarra starfa á fjármála- og stjórnsýslusviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af fjármálatengdum störfum, s.s. innheimtu eða bókhaldi
- Þekking og reynsla af Microsoft Dynamics 365 (BC) eða sambærilegu bókhaldskerfi
- Mjög góð færni í excel og word, auk góðrar almennrar tölvuþekkingar
- Talnagleggni, skipulagshæfni, vandvirkni og nákvæmni
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og sveigjanleiki
Advertisement published19. February 2026
Application deadline12. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (8)

Umsjónarmaður frístundar á Hvanneyri
Borgarbyggð

Aðstoðarforstöðumaður frístundar í Borgarbyggð - GBF-deild
Borgarbyggð

Skemmtilegt starf í umhverfis- og garðyrkjustörfum
Borgarbyggð

Fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf í áhaldahúsi
Borgarbyggð

Flokkstjórar í Vinnuskóla Borgarbyggðar
Borgarbyggð

Leiðbeinendur í Vinnuskóla Borgarbyggðar
Borgarbyggð

Spennandi sumarstarf í búsetuþjónustu
Borgarbyggð

Sumarstörf við sundlaugar Borgarbyggðar
Borgarbyggð

