Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Iðjuþjálfi

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Á hjúkrunarheimilunum er rekin dagþjónusta, mötuneyti, þvottahús, auk þess sem meðal annars er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, fjölbreytt félagsstarf og læknisþjónustu. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óskar eftir að ráða iðjuþjálfa til starfa. Starfshlutfall er 80-90% í dagvinnu og um tímabundið stöðugildi út ágúst 2026 er að ræða með starfstöð á Hlíð. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin/n að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, lipurð í þjónustu og einlægan áhuga á starfi í þjónustu við aldraða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í umönnun og þjálfun skjólstæðinga
  • Skipuleggur og tekur þátt í iðju skjólstæðinga í samvinnu við starfsfólk
  • Nýtir viðeigandi matstæki, gerir færnimat og skipuleggur íhlutunaráætlun fyrir notendur og miðlar nauðsynlegum upplýsingum til annarra
  • Stuðlar að og viðheldur sjálfræði og sjálfstæði skjólstæðinga og eflir þá til sjálfshjálpar
  • Sækir um, veitir ráðgjöf, fræðslu og þjálfun á hjálpartæki til skjólstæðinga og starfsfólks
  • Veita starfsfólki ráðgjöf varðandi einstaklingsíhlutanir
  • Skráning og utanumhald um hjálpartæki Hjúkrunarheimilisins
  • Taka viðtöl og annast umsóknarferli tengt þjónustu og aðstoð
  • Umsjón með sértækumhópum og tryggja faglegt skipulag og eftirfylgd
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í iðjuþjálfun
  • Íslenskt starfsleyfi og löggilding frá Landlæknisembættinu
  • Reynsla af störfum með öldruðum er æskileg
  • Færni í stjórnun og skipulagningu
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta, skrifuð og töluð
Advertisement published21. August 2025
Application deadline7. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags