ICEWEAR
ICEWEAR
ICEWEAR

ICEWEAR Garn Akureyri óskar eftir starfsfólki í hlutastarf

ICEWEAR Garn Akureyri óskar eftir að ráða metnaðarfullan og skapandi einstakling í sölu og verslunarstarf. Viðkomandi þarf að hafa reynslu og áhuga á prjónaskap. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir ríkri þjónustulund og vilja til að veita framúrskarandi góða þjónustu.

Um hlutastarf er að ræða, önnur hver helgi með möguleika á virkum dögum.

Icewear Garn Akureyri er í Amaró húsinu, Hafnastræti. Þar fæst allt það helsta sem við kemur prjónaskap. Garn, prjónauppskriftir og fylgihlutir.

Um ICEWEAR

Icewear hefur hlotið jafnlaunvottun og vinnur samkvæmt jafnréttisstefnu fyrirtækisins sem og mannauðsstefnu. Þá er í gildi samskiptasáttmáli. Gildi Icewear eru samskipti, metnaður og ánægja. Lögð er áhersla á samvinnu, góð samskipti og stuðning milli deilda fyrirtækisins.

Tekið er vel á móti nýju starfsfólki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf sölufólks í Icewear Garn er bæði fjölbreytt og skemmtilegt. Helstu verkefni eru aðstoð við viðskiptavini um val á garni og uppskriftum, áfyllingar á vörum, tiltekt, þrif og önnur tilfallandi almenn verslunarstörf. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  1. Þekking á prjónaskap og geta til að leiðbeina viðskiptavinum um allt er viðkemur vali á garni.
  2. Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  3. Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði 
  4. Heiðarleiki og stundvísi
Fríðindi í starfi

Góð afsláttarkjör af Icewear vörum, garni og fatnaði. 

Advertisement published25. June 2025
Application deadline11. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags