
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku, þekkingu og framsækni.

Hversu vel þekkir þú verðbréfamarkaðinn?
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing í deild verðbréfamarkaða á sviði háttsemiseftirlits, sem er annað af tveimur eftirlitssviðum bankans.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til þess að öðlast djúpa þekkingu á verðbréfamarkaðinum.
Í deild verðbréfamarkaða starfar öflugur hópur sem sinnir meðal annars verkefnum sem snúa að eftirliti með innviðum s.s. kauphöllum og verðbréfamiðstöðvum, framkvæmd verðbréfaviðskipta, upplýsingaskyldu útgefenda, gagnsæi á markaði, markaðssvikum og gagnaskilum. Að auki er lögð rík áhersla á hagnýta notkun gagna og aðferðir við að nýta gervigreind við eftirlit.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlitsverkefni og greiningar vegna mögulegrar markaðsmisnotkunar, innherjasvika og upplýsingaskyldu útgefenda fjármálagerninga.
- Eftirlit með kauphöllum og verðbréfamiðstöðvum.
- Eftirlit með skilum og gæðum gagna frá eftirlitsskyldum aðilum.
- Yfirferð og staðfesting skjala sem fjármálaeftirlitinu ber að samþykkja, s.s. lýsingar og tilboðsyfirlit vegna yfirtökutilboða.
- Þróun aðferðafræði og verklags við verðbréfamarkaðseftirlit.
- Hagnýting gervigreindar við eftirlit.
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi á sviði verðbréfamarkaða.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaranám sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði, hagfræði og verkfræði.
- Þekking og reynsla á verðbréfamarkaði.
- Þekking og reynsla af úrvinnslu gagna er kostur.
- Þekking á Power BI er kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum.
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, greiningarhæfni, ábyrgð, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Advertisement published8. May 2025
Application deadline19. May 2025
Language skills

Required
Location
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
Human relationsPublic administration
Work environment
Professions
Job Tags