Skatturinn
Skatturinn

Hugbúnaðarsérfræðingar á Tæknisviði

Skatturinn er framsækin þjónustustofnun sem leggur grunn að samfélagslegri þjónustu með því að tryggja tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og leggjum okkar af mörkum til að vernda samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að lausnamiðuðum sérfræðingum á sviði hugbúnaðar með brennandi áhuga á rafrænum lausnum, gögnum og umbótaverkefnum.

Starfið felur í sér að:

  • Greina þarfir og ferla og umbreyta þeim í skýrar kröfur fyrir þróunarteymi
  • Stýra verkefnum og tryggja árangursríkan feril frá hugmynd til innleiðingar
  • Taka virkan þátt í innleiðingu nýrra lausna og breytingum á núverandi kerfum
  • Koma að þróun og rekstri hugbúnaðarlausna Skattsins með áherslu á öryggi, skilvirkni og góða notendaupplifun

Við erum að leita að einstaklingi sem nýtur þess að tengja saman fólk, ferla og tæknilausnir, sem sér heildarmyndina í verkefnum en heldur jafnframt vel utan um smáatriðin

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða skyldum greinum er æskileg
  • Þekking og/eða reynsla af stjórnun verkefna á sviði upplýsingatækni
  • Hæfni til að greina ferla og umbreyta þörfum í skýrar kröfur
  • Færni í að koma upplýsingum á framfæri á skýran og hnitmiðaðan hátt til ólíkra hópa
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og/eða á tolla- og skattframkvæmd er kostur
  • Góð samskipta og samstarfshæfni, ásamt jákvæðni, þjónustulund og lausnamiðaðri nálgun
  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published26. September 2025
Application deadline6. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Katrínartún 6
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Software testingPathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.IT project managementPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags