
Dagar hf.
Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og saga okkar nær allt aftur til ársins 1980.
Við leggjum áherslu á að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar. Sérhæfing okkar byggir á áratuga reynslu, framsækni og frábæru starfsfólki. Við höfum einsett okkur að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum.
Starfsemin teygir anga sína víða um land, Dagar eru með fastar starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ.
Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið.
Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Vinnustaðurinn
Hjá Dögum starfa um 800 einstaklingar af mismunandi þjóðernum, með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Árangur okkar er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni okkar, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir okkar kunna að meta.
Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu.
Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk. Við liðsinnum okkar fólki að eflast og ná árangri og erum stolt þegar við sjáum það blómstra í lífi og starfi.

Hlutastörf í ræstingum í Hveragerði / Part time jobs in cleaning in Hveragerði
Dagar leita eftir starfsfólki í hlutastörf í ræstingar í Hveragerði.
Við leitum að starfsfólki sem er jákvætt, með góða þjónustulund, skipulagt og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð og íslensku og/eða enskukunnáttu og geta hafið störf 5. janúar 2026.
Dagar hf. is seeking reliable and motivated part-time cleaning staff for positions in Hveragerði.
We are looking for individuals who are positive, service-minded, well-organized, and able to work independently.
Applicants must have a clean criminal record and speak Icelandic and/or English and can start working from 5th of January 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ræstingar hjá viðskiptavinum Daga í Hveragerði
Cleaning for Dagar's customers in Hveragerði.
Advertisement published18. December 2025
Application deadline2. January 2026
Language skills
IcelandicOptional
EnglishOptional
Location
Breiðumörk 20
Type of work
Skills
Clean criminal recordPositivityIndependenceCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (10)

Ræstingar / Cleaning Service
iClean ehf.

Ný störf í Dölum - Starfsfólk í íþróttamiðstöð - Dalabyggð
Sveitarfélagið Dalabyggð

Aðstoðarmanneskja í þvottahús rannsóknar
Coripharma ehf.

Alhliða hótel & veitingastarf
Hótel Hvolsvöllur

Öflugt starfsfólk óskast í íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar

Skólaliði og frístundarleiðbeinandi í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Uppvaskari / Dishwasher
Lóla Restaurant

Starf við ræstingar á hóteli og íbúðum.
Steinaskjól ehf.

Laugarás Lagoon óskar eftir starfsfólki í þrif/ Join Our Cleaning Team - Hlutastarf/Parttime
Laugarás Lagoon

Jobs in cleaning / Störf við ræstingar
Dictum