Icepharma
Icepharma
Icepharma

Hjúkrunarfræðingur í Coloplast teymi

Coloplast hjá Heilbrigðislausnum Icepharma leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í spennandi starf.

Ert þú metnaðarfullur og drífandi hjúkrunarfræðingur og hefur áhuga á spennandi sölu- og fræðslustarfi? Þá gætum við verið að leita að þér til að taka við spennandi starfi í Coloplast teymi Icepharma.

Coloplast þróar vörur og þjónustu sem auðveldar líf einstaklinga sem eiga við mjög persónulegan heilsufarsvanda að stríða. Sem hjúkrunarfræðingur í teyminu munt þú vinna að því að styrkja stöðu Coloplast á íslenskum markaði með fræðslu og framúrskarandi þjónustu.

Ennfremur munt þú taka þátt í verkefnum þvert á fyrirtækin, í náinni samvinnu við starfsfólk Coloplast í Danmörku og Icepharma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala, fræðsla og þjónusta á stómavörum, þvagvörum og sáravörum
  • Kynningar, fræðsla og eftirfylgni
  • Myndun viðskiptatengsla og heimsóknir til viðskiptavina og birgja
  • Þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini
  • Fundir og ráðstefnur innanlands og erlendis
  • Þátttaka í viðskiptaþróun og greiningu vaxtartækifæra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í hjúkrunarfræði
  • Reynsla af hjúkrunarstörfum
  • Metnaður, drifkraftur og frumkvæði
  • Jákvæðni og framúrskarandi færni í tengslamyndun og mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni ásamt faglegum og sjálfstæðum vinnubrögðum
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku
  • Gott vald á dönsku eða öðru Norðurlandamáli er kostur
Vinnustaðurinn
  • Mötuneyti í hæsta gæðaflokki
  • Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
  • Áhersla er lögð á fræðslu starfsmanna
  • Skýr starfsmannastefna um jákvæð samskipti og vinnustaðamenningu
  • Fjölbreytt úrval af vítamínum og steinefnum á vinnustaðnum
  • Líkamsræktarstyrkir
  • Öflugt starfsmannafélag og sjálfsprottnir starfsmannahópar fyrir ýmis áhugamál
  • Styrkir úr heilsusjóði Ósa sem hvetja til heilsueflingar starfsmannahópa
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Advertisement published22. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags