
Heilbrigðiseftirlit - umhverfis- og mengunareftirlit
Heilbrigðiseftirlitið (HEF) auglýsir eftir starfsmanni til að sinna eftirlitsstörfum á starfsvæði Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Leitað er eftir starfsmanni býr yfir menntun á sviði umhverfisfræða, verkfræði, efnafræði, líffræði eða annarra raunvísindamenntunar sem nýtist í starfi.
Eftirlit með fyrirtækjum og stofnunum sem eru starfsleyfisskyld samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Útgáfa starfsleyfa, skráning og skýrslusgerð.
Móttaka ábendinga og kvartana.
Fræðsla og upplýsingamiðlun til fyrirtækja, stofnanna og almennings.
Umsækjendur sem hafa réttindi til að starfa sem heilbrigðisfulltrúar skv. reglugerð 571/2002 eru sérkstaklega velkomnir, en aðrir umsækjendur hafa tækifæri til að sækja sér slík réttindi að loknu 6 mánaða starfstíma hjá eftirlitinu.Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku og eiga auðvelt með samskipti við fólk.
Þá er góð tölvukunnátta nauðsynleg og skilyrði að umsækjandi hafi bílpróf.
Heilbrigðiseftirlitið er staðsett að Hlíðasmára 14 í Kópavogi og eru góðar samgöngur að vinnustaðnum. Mikið kapp er lagt á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og góð samskipti séu á milli rekstraraðila og starfsmanna eftirlitsins og að fræðslu og upplýsingamiðlun sé í forgangi.










