Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Hefur þú áhuga á alþjóðlegum efnahagsmálum?

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa í deild alþjóðasamskipta, miðlunar og stefnumótunar á sviði skrifstofu bankastjóra.

Skrifstofa bankastjóra hefur miðlæga yfirsýn yfir starfsemi bankans, styður við störf bankaráðs, nefnda bankans auk seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Deild alþjóðasamskipta, miðlunar og stefnumótunar ber ábyrgð á ráðgjöf og þjónustu við framangreinda aðila, sem meðal annars felst í undirbúningi funda, erinda, ákvarðana, verkefnastjórn, undirbúningi nefndarstarfs og bankaráðsfunda. Deildin fer einnig með alþjóðasamskipti svo sem þátttöku í stefnumótun á sviði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, umgjörð stjórnarhátta, rekstraráhættu og verkefnastýringu verkefnasafns, innra upplýsingaflæði ásamt ytri upplýsingamiðlun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þáttaka í alþjóðasamstarfi innan kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
  • Regluleg samskipti við og fundir með sérfræðingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
  • Skipulag reglulegra heimsókna og árlegrar úttektar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi og fleiri alþjóðlegra aðila.
  • Greiningar á sviði alþjóðlegra efnahagsmála, peningastefnu og fjármálastöðugleika.
  • Undirbúningur kynninga og annars efnis fyrir varaseðlabankastjóra um efni tengt alþjóðlegum efnahagsmálum, peningastefnu og fjármálastöðugleika. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem á sviði hagfræði eða fjármála.
  • Góð greiningarfærni og hæfni til að vinna markvisst úr gögnum og upplýsingum.
  • Kunnátta á myndrænni framsetningu gagna.
  • Þekking og reynsla af alþjóðamálum.
  • Reynsla af alþjóðlegum samskiptum og stefnumótun á því sviði er kostur .
  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
  • Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi. 
Advertisement published25. June 2026
Application deadline13. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags