Akureyri
Akureyri
Akureyri

Háskólamenntaður starfsmaður í nýjan búsetukjarna á Akureyri

Búsetukjarninn Hafnarstræti 16 óskar eftir að ráða starfsmann með háskólamenntun (BS, BA, B.Ed) sem nýtist í starfi í þjónustu við íbúa. Um er að ræða ótímabundið starf í 80% starfshlutfalli, unnið er í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í febrúar 2025 eða eftir samkomulagi.

Unnið er eftir hugmyndafræði valdeflingar og Þjónandi leiðsagnar eða annarri hugmyndafræði sem mætir þörfum notenda og ákveðin er af velferðarsviði.

Velferðarsvið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk. Lögð er áhersla á að efla og styðja notendur þjónustunnar til sjálfsbjargar og sjálfstæðis. Starfsfólk okkar sinnir ólíkum einstaklingum í fjölbreyttu og skemmtilegu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir faglega ráðgjöf og stuðning við íbúa og starfsfólk.
  • Tekur þátt í faglegri uppbyggingu og skipulagningu á einstaklingsmiðaðri þjónustu í samstarfi við forstöðumann.
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila og aðstandendur.
  • Tekur  þátt í gerð þjónustuáætlana og dagsskipulags innan hverrar einingar fyrir sig.
  • Vinnur náið með forstöðumanni og deildarstjórum og er leiðbeinandi við starfsfólk um fagleg vinnubrögð á starfsvettvangi.
  • Tekur  þátt í mótun starfseminnar.
  • Aðstoðar við athafnir daglegs lífs.
  • Tekur þátt í öllum almennum heimilisstörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (B.S., B.A., B.Ed ) sem nýtist í starfi, s.s. á félags-, heilbrigðis- eða uppeldissviði.
  • Iðjuþjálfamenntun er kostur.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi bílpróf.
  • Þekking á málefnum notendahópsins, þ.e. fötluðum og þeirri þjónustu sem þeim stendur til boða.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði, samvinnuhæfni og vera tilbúinn að vinna með hópi fólks.
  • Góð samskiptafærni.
  • Gott líkamlegt atgervi.
  • Talar, skrifar og skilur vel íslensku.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published29. November 2024
Application deadline15. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Hafnarstræti 16, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags