Golfskálinn
Golfskálinn
Golfskálinn

Golfskálinn leitar að öflugum verslunarstjóra

Golfskálinn golfverslun leitar að ábyrgðarfullum og þjónustulunduðum verslunarstjóra til starfa í lifandi og skemmtilegu starfsumhverfi. Við leitum að jákvæðum leiðtoga með brennandi áhuga á verslunarrekstri og frábærri þjónustu.

Um starfið

Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunar.

Starfið er fjölbreytt og krefjandi með áherslu á góða þjónustu, skipulag og stjórnunarhæfni.

Starfið felur m.a. í sér:

· Almenn verslunarstörf og faglega sölumennsku

· Framsetningu vöru og ábyrgð á útili verslunar

· Umsjón með starfsmannahaldi og þjálfun starfsfólks

· Gerð og utanumhald vaktaplana

· Birgðastýringu og vörupantanir

· Þátttöku í markaðssetningu og kynningum

· Önnur tilfallandi verkefni tengd daglegum rekstri

Hæfniskröfur og reynsla

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir eftirfarandi:

Reynsla af verslunarstjórnun og sölumennsku
Leiðtogahæfni og reynsla af starfsmannastjórnun er mikill kostur
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Góð tölvukunnátta
Þekking og áhugi á golfi er æskilegur
Mjög góð þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni
Geta til að vinna undir álagi og leysa úr verkefnum á eigin spýtur

Við bjóðum:

· Fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum hópi

· Sveigjanleika og tækifæri til að hafa áhrif á reksturinn

· Afslátt af vöru og búnaði

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til og með 5.nóvember. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Ef þú ert lausnamiðaður einstaklingur með brennandi áhuga á verslun og þjónustu, þá viljum við heyra frá þér!

Advertisement published20. October 2025
Application deadline5. November 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Bíldshöfði 16, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags