Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Global Product Manager

Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks? 

Embla Medical (Össur) leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf vörustjóra á Íslandi.

Vörustjóri hefur yfirumsjón með og stýrir stefnumótun á einni af okkar vörulínum með það að meginmarkmiði að auka arðsama markaðshlutdeild og tekur þar með virkan þátt í framþróun fyrirtækisins. Vörustjóri hjá Össuri tilheyrir alþjóðlegri markaðsdeild og vinnur náið með öðrum deildum fyrirtækisins að þarfagreiningu og í að uppgötva ný tækifæri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun og viðhald heildarstefnu vörulínu  
  • Staðfærsla og stýring á líftímaskeiði vöru  
  • Markaðssetning nýrra og núverandi vara í samráði við aðrar deildir fyrirtækisins 
  • Þáttaka í hönnun og innleiðingu á markaðsstefnu (Go-to-Market Strategy) í samvinnu við aðrar deildir fyrirtækisins 
  • Myndun markaðstengsla (Voice of Customer) og nýting í greiningu og þróun nýrra markaðs- og viðskiptatækifæra 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi  
  • MBA/meistarapróf er kostur  
  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla við markaðsstörf og/eða viðskiptaþróun 
  • Hæfileiki til að stýra og taka þátt í alþjóðlegum verkefnum og þverfaglegri teymisvinnu  
  • Alþjóðleg starfsreynsla  
  • Sterkir samskiptahæfileikar  
  • Mjög góð enskukunnátta  
  • Reynsla úr heilbrigðisiðnaði kostur  
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

  • Sveigjanleiki
Advertisement published20. August 2025
Application deadline4. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Product management
Professions
Job Tags