Storm hótelrekstur ehf.
Storm hótelrekstur ehf.
Storm hótelrekstur ehf.

Gestamóttökustjóri á Storm Hótel

Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf gestamóttökustjóra á Storm Hótel í Reykjavík. Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum verkefnum í gestamóttöku ásamt daglegum rekstri í samvinnu við hótelstjóra.

Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf gestamóttökustjóra á Storm Hótel í Reykjavík.

Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund og skipulagshæfileika til að ganga í lið með okkur og veita gestum framúrskarandi þjónustu.

Hótel Storm er staðsett í Þórunnartúni 4 í Reykjavík og er hluti af Keahótel hótelkeðjunni. Hótelið er fallegt 93ja herbergja hótel með morgunverðarsal og bar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með gestamóttöku og starfsfólki í samvinnu við hótelstjóra
  • Þjónustu- og gæðaeftirlit
  • Yfirumsjón með bókunum, samskipti við ferðaskrifstofur og gesti
  • Yfirumsjón á bar
  • Skipulagning á komu gesta
  • Mönnun vakta og þjálfun starfsmanna

Keahótel ehf. er eitt af stærstu hótelfélögum landsins og rekur samtals tíu hótel. Hótel Borg, Sand Hótel, Apótek Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights eru í Reykjavík, Hótel Grímsborgir í Grímsnesi, Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði og Hótel Katla í Vík í Mýrdal.

Sjá meira um Storm hótel hér

Keahótel er spennandi vinnustaður þar sem starfar samheldinn hópur með fjölbreyttan bakgrunn. Við leggjum áherslu gott viðmót, þjónustulund, metnað, hæfni, og frumkvæði með það að leiðarljósi að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi og ánægða gesti.

Umsóknarfrestur er til og með 28 Febrúar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af hótelstörfum nauðsynleg
  • Reynsla á barrekstri er kostur
  • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra starfsmenn til árangurs, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
Advertisement published16. February 2026
Application deadline28. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Þórunnartún 4, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags