
Center Hotels
Center Hotels er fjölskyldurekin hótelkeðja til yfir 20 ára.
Hótelin í Center Hotels keðjunni eru 8 talsins, öll staðsett í miðborg Reykjavíkur og bjóða upp á góða þjónustu, notaleg herbergi, veitingastaði, bari, heilsulindir, funda- og veislusali. Hótelin eru:
- Grandi by Center Hotels
- Miðgarður by Center Hotels
- Þingholt by Center Hotels
- Center Hotels Laugavegur
- Center Hotels Arnarhvoll
- Center Hotels Plaza
- Center Hotels Klöpp
- Center Hotels Skjaldbreið
Hjá Center Hotels starfa um 300 manns sem allt er hæfileikafólk á sínu sviði. Starfsfólk okkar býr yfir mismunandi menntun og reynslu en á það sameiginlegt að leggja metnað sinn í að sinna starfi sínu vel og leggja sitt af mörkum við að sinna gestum hótelanna eins vel og hægt er.
Við leggjum metnað okkar í að styrkja og stuðla að því að starfsfólki okkar líði vel í starfi og að þeim bjóðist sá möguleiki að vaxa og dafna innan starfsins og hótelkeðjunnar. Við bjóðum því upp á úrval námskeiða í okkar eigin Center Hotels skóla þar sem boðið er upp á ýmiss konar fræðslu, kennslu og öflugt íslenskunám.
Jafnrétti á vinnustað er okkur hjartans mál og höfum við lagt mikla áherslu á að hafa jafnræði og jafnrétti að leiðarljósi. Við vorum fyrst allra ferðaþjónustufyrirtækja að fá jafnlaunavottun BSI árið 2018 og hlutum við viðurkennningu Jafnvægisvogar FKA árið 2020 og 2021.
Nánari upplýsingar um hótelin okkar er að finna á www.centerhotels.is

Gestamóttaka - Sumarstörf
Gestamóttakan er „hjarta“ hótelsins. Móttökustarfsmaður er sá starfsmaður sem gestirnir eiga mest samskipti við því er mikilvægt að sinna þeirra þörfum ávallt með heiðarleika, jákvæðni og þjónustulund í huga.
Markmiðið er að taka vel á móti gestunum, láta þeim líða vel á meðan dvöl stendur og kveðja þá með bros á vör.
Center Hotels leitar að starfsfólki sumarstörf í gestamóttöku. Við leitum að starfsfólki í dagvinnu þar sem er unnið á 2-2-3 vöktum frá kl 8:00-20:00 sem og í næturvinnu þar sem unnið er í 7 nætur / frí í 7 nætur. Vinnutími næturvaktar er frá 20:00-8:00.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka á móti og veita gestum hótelsins framúrskarandi þjónustu
- Notkun á hótel og bókunarkerfi, auk þess að aðstoða söludeild við bókanir ef við á
- Símsvörun og aðstoð við símsvörun á öllum hótelunum
- Svörun tölvupósta
- Skráning og sala ferða og sölu á allri þjónustu hótelsins
- Uppgjör
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustustörfum og/eða störfum í hótel og ferðaþjónustu er æskileg
- Góð enskukunnátta er skilyrði
- Önnur tungumálakunnátta er kostur
- Hæfni til að geta unnið sjálfstætt og í teymi
- Frumkvæði og öguð vinnubrögð
- Lausnamiðuð hugsun og metnaður til að skila af sér góðu starfi
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund
- Góð tölvukunnátta
Advertisement published12. March 2026
Application deadline26. March 2026
Language skills
EnglishRequired
Location
Þverholt 14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Front Desk Agent – Long-Term Position Hotel Klaustur | Kirkjubæjarklaustur, South Iceland
Hótel Klaustur

Móttaka/ Miðasala Jökulsárlón
Jökulsárlón Ferðaþjónusta ehf.

Móttökuritari á Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Front Desk Agent
Lava Car Rental

Metnaðarfullir einstaklingar í móttöku
Hreyfing

Housekeeping part time 50% / 80%
Panorama Glass Lodge

Gestamóttökustjóri á Storm Hótel
Storm hótelrekstur ehf.

Sumarstörf hjá ICS ehf.
ICS ehf

Reception Manager at Flóra Hotels
Flóra Hotels

Lava Front Desk Service | Part Time Reykjavik
Lava Show

Keahótel - Sumarstörf í Reykjavík / Summer employment in Reykjavík
Keahótel ehf.

Sumarstarf hjá Bókasafni Héraðsbúa og Minjasafni Austurlands
Bókasafn Múlaþings