Kennarasamband Íslands
Kennarasamband Íslands

Fulltrúi Orlofssjóðs

Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar 100% starf fulltrúa í teymi Orlofssjóðs á skrifstofu sambandsins. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna upplýsingagjöf og þjónustu til félagsfólks ásamt öðrum hefðbundnum skrifstofustörfum.

Starfið er fjölbreytt og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta þjónustu við félagsfólk KÍ. Mikilvægt er að viðkomandi hafi mjög góða samskiptahæfni, leggi metnað í að veita góða þjónustu, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi ríkan vilja til að styðja við starfsemi og markmið KÍ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Upplýsingagjöf og afgreiðsla erinda vegna Orlofssjóðs KÍ.
  • Þjónusta í gegnum síma, afgeiðsla fyrirspurna og svörun tölvupósta frá félagsfólki.
  • Uppgjör og tilfallandi bókhaldstengd verkefni.
  • Utanumhald og uppfærsla bókunarkerfis sjóðsins í samvinnu við framkvæmdastjóra orlofssjóðs.
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkefnastjórnunar, ferðaþjónustu eða annarrar þjónustu.
  • Jákvæðni og rík þjónustulund.
  • Ánægja af samskiptum við fólk.
  • Reynsla af uppgjörum og að vinna með tölur.
  • Hæfni til að starfa sjálfstætt og í teymi.
  • Metnaður og sveigjanleiki í starfi.
  • Mjög góð hæfni í íslensku og ensku, jafnt í töluðu og rituðu máli.
Advertisement published27. May 2026
Application deadline7. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags