
S4S Netverslun - Skór.is - AIR.is - Ellingsen.is
Netverslanir S4S eru Skór.is, Air.is, Ellingsen.is og Rafhjólasetur.is.
Netverslanirnar bjóða fjölbreitt úrval af vönduðum skóm, fatnaði, fylgihlutum, útileguvörum og rafhjólum fyrir alla fjölskylduna.
S4S ehf rekur skóbúðirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og Toppskóinn, ásamt Air verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri og netverslununum Skór.is, Ellingsen.is og Air.is.
Hjá S4S starfa um 180 manns og hefur fyrirtækið margoft hlotið viðurkenningu VR sem fyrirmyndavinnustaður auk þess að hafa verið valið fyrirtæki ársins. Þá hefur S4S fengið viðurkenningu Creditinfo um fyrirmyndarfyrirtæki árlega undanfarin ár.

Starfsmaður í netverslun S4S
Ert þú með framúrskarandi þjónustulund?
Við leitum að skemmtilegum starfsmanni í teymið okkar í Netverslun S4S. Viðkomandi mun hafa umsjón með og sinna þjónustu við viðskiptavini ásamt því að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum í deildinni.
Undir Netverslun S4S falla Skór.is, Lindex.is, Air.is, Ellingsen.is og PremiumOutlet.is
Í netverslun er haldið utan um síðurnar 5 með stöðugum umbótum hvað varðar virkni og vöruframboð. Einnig er stuðningur við sjöttu síðuna, brp.is. Hjá okkur fara einnig fram myndatökur, pantanir afgreiddar og ýmislegt fleira. Netverslun S4S er staðsett í Smáralind.
Aðilinn sem við leitum að þarf að vinna vel í teymi, geta unnið sjálfstætt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fyrst og fremst að vera til staðar fyrir viðskiptavini okkar í gegnum ýmsar samskiptaleiðir.
- Taka á móti vöruskilum og vöruskiptum (þ.á.m. að kreditfæra reikninga).
- Útbúa fréttabréf fyrir Netklúbbinn okkar í samstarfi við markaðsdeild.
- Yfirfara vefsíður og gera lagfæringar eftir þörfum.
- Úbúa textalýsingar á vörur.
- Tiltekt og frágangur netpantana.
- Móttaka og frágangur á vörum.
- Stuðningur við samfélagsmiðlastjóra:
- Umsjón með daglegri virkni og birtingum á samfélagsmiðlum.
- Efnisgerð fyrir samfélagsmiðla.
- Undirbúningur myndefnis fyrir samfélagsmiðla.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Framúrskarandi íslenska
- Stundvísi
- Jákvætt hugarfar
- Skapandi hugsun
- Vera skipulagður/skipulögð
- Sýna frumkvæði í verki
- Vera lausnamiðaður/lausnamiðuð
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af vefumsjónarkerfum er kostur
- Hæfni til að læra á ný kerfi og forrit
- Geta sinnt hinum ýmsu verkefnum
- Þekking á samfélagsmiðlum
Advertisement published27. May 2026
Application deadline7. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Smáralind
Type of work
Skills
Customer checkoutTech-savvyReliabilityAdaptabilityDynamics NAVProfessionalismQuick learnerProactiveClean criminal recordPositivityStockroom workHuman relationsMicrosoft OutlookPrecisionPhone communicationEmail communicationIndependencePlanningPunctualContent writingWebsite managementProduct presentationWindowsCustomer servicePatience
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í stafrænum samskiptum og miðlun
Gildi

Skrifstofustarf hjá flutningafyrirtæki
Fraktlausnir ehf

Starfsmaður á Laser og samsetningu.
Signa ehf

Sérfræðingur á Hvammstanga
Vinnumálastofnun

Þjónustufulltrúi í fraktdeild - Sumarstarf
DHL Express Iceland ehf

Þjónustufulltrúi varahluta
BL ehf.

Bókari
Sveitarfélagið Skagafjörður

Skrifstofustarf - Sumarstarf
Garðaþjónusta Sigurjóns ehf

Ert þú hugmyndaríkur textasmiður?
Birtíngur útgáfufélag

Akureyri: Hluta- og helgarstarf
Húsasmiðjan

Markaðssérfræðingur
IKEA

Ráðgjafi í verslun - Höfuðborgasvæðið
Bílanaust