Eimskip
Eimskip
Eimskip

Fulltrúi í viðskiptaþjónustu innanlands

Viðskiptaþjónusta Eimskips Innanlands leitar að metnaðarfullum og ábyrgum starfsmanni til að ganga til liðs við öflugt og þjónustumiðað teymi.

Viðkomandi þarf að vera stundvís, skipulagður í vinnubrögðum og búa yfir framúrskarandi þjónustulund. Starfið felur í sér fjölbreytt samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk, auk þátttöku í daglegum verkefnum sem styðja vðið skilvirka og faglega þjónustu.

Á Innanlandssviði starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið. Sviðið er leiðandi í innanlandsflutningum og vörudreifingu, og sinnir jafnframt vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita viðskiptavinum upplýsingar, ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu
  • Svara fyrirspurnum í síma, tölvupósti og netspjalli
  • Sinna samskiptum og þjónustu við starfsmenn og aðrar deildir fyrirtækisins
  • Skrá og vinna úr upplýsingum í upplýsingakerfum félagsins
  • Taka þátt í fjölbreyttum tilfallandi verkefnum sem tengjast starfsemi deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Framúrskarandi þjónustulund, jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
  • Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
  • Heitan mat í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góðan starfsanda í samhentu teymi
Advertisement published10. July 2026
Application deadline19. July 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags