
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík undirbýr samfélagið fyrir framtíðina. Við stöndum framarlega á alþjóðavísu í að skapa og miðla þekkingu með siðferði, jafnræði og sjálfbærni að leiðarljósi.
Háskólinn er hreyfiafl í þróun atvinnulífs og samfélags, með virku samstarfi og menntun sem mætir þörfum þeirra.
Háskólinn býður framúrskarandi nám, stuðning og starfsaðstöðu. Hann styrkir nemendur í að byggja brýr á milli fræðigreina, tengir þau við atvinnulíf og býður upp á námsleiðir sem hægt er að sníða að eigin hæfni og áhugasviðum. Í rannsóknarstarfi leggur háskólinn áherslu á samvinnu, skapandi hugsun og heilindi.
Háskólinn er driffjöður nýsköpunar í gegnum hagnýtingu rannsókna og þjálfun fyrir alla nemendur. Sjálfbærni er undirliggjandi þáttur í námi, rannsóknum og rekstri háskólans.

Fulltrúi á háskólaskrifstofu - tímabundin staða
Háskólinn í Reykjavík leitar eftir að ráða fulltrúa í 100% starf, tímabundið til mars 2027. Starfið heyrir undir háskólaskrifstofu HR. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem verkefnin geta verið af ýmsum toga. Starfið hentar vel ný útskrifuðum. Gott væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
STARFSSVIÐ
- Aðstoð og utanumhald um dagatal og tölvupósta fyrir rektor háskólans
- Aðstoð og eftirfylgni með verkefnum rektors og stjórnenda
- Umsjón og samþætting verkefna, funda , viðburða og ferða fyrir rektor og aðra stjórnendur
- Samstarf við starfsfólk deilda og stoðdeildir háskólans
- Ýmis tilfallandi verkefni
HÆFNISKRÖFUR
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að halda utan um mörg verkefni á sama tíma
- Lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund
- Frumkvæði og fagmennska í vinnubrögðum
- Góð íslensku- og enskukunnátta jafnt í töluðu sem rituðu máli
Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá, valkvætt er að láta kynningarbréf fylgja með.
Umsóknarfrestur er opin þar til hæfur umsækjandi hefur verið ráðinn.
Nánari upplýsingar veitir Ólöf Vígdís Ragnarsdóttir ([email protected]), skrifstofustjóri háskólaskrifstofu og mannauðsdeild HR ([email protected]). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Advertisement published1. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
General computer knowledgeProfessionalismPlanningCustomer service
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Liðsauki í fasteigna- og munatjón
Vörður tryggingar

Skrifstofufulltrúi
Smyril Line Ísland ehf.

Deildarstjóri á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Þjónustufulltrúi (tímabundið starf)
Dropp

Sérfræðingur í neyðarvörnum
Rauði krossinn á Íslandi

Fulltrúi í þjónustudeild Eimskips
Eimskip

Bókari og Uppgjörsaðili
Fjárheimar ehf.

Rekstrarstjóri ævintýraferða á Adventure Ground og í Skaftafelli
Icelandia

Símsvörun - þjónustuver
Teitur

Skrifstofustarf hjá garðyrkjufyrirtæki
Hreinir Garðar ehf

Tryggingaráðgjafi
Landsbankinn

Skrifstofustarf
Bayern líf