

Frístundarleiðbeinandi í Lágafellsskóla
Lágafellsskóli óskar eftir frístundaleiðbeinendum
Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf með börnum í 1.-4.bekk.
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.
Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk. Vinnutími er kl 13:10-16:00-16:30 virka daga.
Um hlutastörf er að ræða en möguleiki er á fullu starfi og tengja starfið við starf stuðningsfulltrúa skólans.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
- Undirbúningur fyrir starfsemina hverju sinni og tiltekt að henni lokinni
- Leiðbeina og tryggja þátttöku barnanna í starfi með styrk þeirra að leiðarljósi
- Ýta undir leik, sköpun og lýðheilsu
- Vinna gegn andfélagslegri hegðun og skapa öruggt umhverfi
- Leysa úr ágreiningnum, leiðbeina samræðum barna, ýta undir vinsemd og styðja börnin í að eiga við tilfinningar sínar
- Skapa lýðræðislegt umhverfi þar sem börnin eiga kost á því að tjá sig og hafa áhrif á starfsemina
- Stíga inn í fjölbreytt hlutverk eftir þörfum og hæfni
- Stýra smiðjum, yfirumsjón með valstöðum, fylgja á eftir viðveru og mætingu barna
- Önnur hlutverk sem styðja við og eða bæta gæði starfsins.
- Samskipta- og samvinnuhæfni
- Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
- Sveigjanleiki og hjálpsemi
- Þolinmæði og umhyggjusemi
- Hæfni til þess að lesa í aðstæður
- Tæknilæsi eða vilji til þess að nýta tækni í starfi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta
- Lágmarks aldur 18 ára (eða að verða 18 ára á árinu)












