Frístundamiðstöðin Tjörnin
Frístundamiðstöðin Tjörnin
Frístundamiðstöðin Tjörnin

Frístundaleiðb. m. stuðning í frístundaheimili Tjarnarinnar

Frístundamiðstöðin Tjörnin leitar að áhugasömu starfsfólki í hlutastörf á frístundaheimilum sínum í vetur, en starfið hefst 22. ágúst. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur um 13:30 og er starfið kjörið fyrir þau sem eru í skóla og leita að skemmtilegu hlutastarfi með námi eða þau sem vilja vinna í 50% starfi eftir hádegi.
Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf og að virkja þau til þátttöku. Hæft og áhugasamt starfsfólk er lykillinn að því að veita börnunum og foreldrum sem sækja þjónustu til frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar fyrsta flokks þjónustu og gegna hæfir og áhugasamir frístundaleiðbeinendur/frístundaráðgjafar þar veigamiklu hlutverki.
Frístundamiðstöðin Tjörnin starfrækir frístundaheimilin Draumaland við Austurbæjarskóla, Eldflaugina við Hlíðaskóla, Frostheima, safnfrístund fyrir 3. og 4. bekk í Vesturbæ, Halastjörnuna við Háteigsskóla, Selið við Melaskóla, Skýjaborgir við Vesturbæjarskóla og Undraland við Grandaskóla en leitað er eftir fólki á alla þessa staði. Umsækjendur geta tekið fram í umsókn hvort einn staður henti betur en annar.
Frístundamiðstöðin Tjörnin heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, sem leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks og við störfum samkvæmt menntastefnu Reykjavíkurborgar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • * Vinna samkvæmt samþykktri einstaklingsáætlun.
  • * Veita einstaklingsbundinn stuðning í samræmi við leiðbeiningar foreldra, forstöðumann og ráðgjafaþroskaþjálfa.
  • * Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  • * Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • * Samráð og samvinna við börn og annað starfsfólk.
  • * Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • * Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • * Áhugi á að vinna með fötluðum börnum.
  • * Frumkvæði og sjálfstæði.
  • * Færni í samskiptum.
  • * Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Advertisement published20. September 2024
Application deadline31. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicBasic skills
Location
Frostaskjól 2, 107 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Suitable for
Professions
Job Tags