Framleiðslustarf
Norðurál leitar að metnaðarfullu og ábyrgu fólki í fjölbreytt störf í ker- og steypuskála. Störfin henta öllum kynjum. Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri og hafi gild ökuréttindi.
Unnið er á þrískiptum 8 tíma vöktum (fimm daga vinna/fimm daga frí). Starfsstöðin er á Grundartanga en starfsfólki bjóðast ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Nýtt starfsfólk fer í markvissa þjálfun í upphafi starfstíma, þar sem höfuðáhersla er lögð á öryggi starfsfólks á vinnustað og þekkingu á vinnuumhverfi og tækjabúnaði.
· 18 ára lágmarksaldur
· Mikil öryggisvitund og áverkni
· Heiðarleiki og stundvísi
· Góð samskiptahæfni
· Dugnaður og sjálfstæði
· Bílpróf er skilyrði
· Ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu
· Vinnuvélaréttindi