SÁÁ
SÁÁ

Framkvæmdastjóri lækninga

Viltu leiða faglega þróun læknisþjónustu SÁÁ og hafa áhrif á framtíð meðferðar og þjónustu?

SÁÁ leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra lækninga.

Viðkomandi leiðir faglega þróun og samræmingu læknisþjónustu SÁÁ þvert á starfsemina. Starfið heyrir undir forstjóra og felur í sér ábyrgð á gæðum, þróun og samstarfi við stjórnendur og fagfólk innan samtakanna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita læknisþjónustu SÁÁ faglega og stefnumótandi forystu
  • Samræma læknisfræðilegt verklag, meðferðarlínur og fagleg viðmið þvert á starfsstöðvar
  • Bera ábyrgð á gæðum læknisþjónustu, sjúklingaöryggi, sjúkraskrá, klínískum ferlum og umbótastarfi
  • Leiða þróun þjónustu, innleiðingu nýrrar þekkingar og þróunarverkefni á sviði lækninga
  • Stýra faglegri þróun læknateymis, fræðslu og mönnun í samstarfi við stjórnendur
  • Taka þátt í stefnumótun, áætlanagerð, rekstri og forgangsröðun þjónustunnar
  • Vinna að samstarfi við yfirvöld, heilbrigðisstofnanir og aðra samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Lækningaleyfi á Íslandi og sérfræðimenntun sem nýtist í starfi
  • Reynslu eða sérþekkingu á sviði fíkni- eða geðheilbrigðisþjónustu
  • Víðtæka klíníska reynslu og sterka faglega sýn
  • Reynslu af stjórnunar- eða leiðtogahlutverki
  • Þekkingu á gæðamálum, umbótastarfi og þróun heilbrigðisþjónustu
  • Reynslu af stefnumótun, áætlanagerð og rekstrarlegri ákvarðanatöku
  • Hæfni til að leiða breytingar og þróunarverkefni
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Hæfni til að vinna með gögn og árangursmælikvarða
  • Mjög góða færni í íslensku og ensku
Advertisement published26. October 2026
Application deadline9. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relations
Professions
Job Tags