Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Framkvæmdastjóri

Barna- og fjölskyldustofa leitar að metnaðarfullum og framsæknum leiðtoga sem hefur þekkingu á málefnum barna og hæfni til að leiða nýtt svið stofnunarinnar. Undir sviðið mun heyra þjónusta úrræða á vegum Barna- og fjölskyldustofu, þróun og innleiðing á nýjum úrræðum og faglegt eftirlit með úrræðum á vegum stofnunarinnar. Um er að ræða nýtt starf í framkvæmdastjórn stofnunarinnar sem heyrir undir forstjóra. Nýtt hlutverk Barna- og fjölskyldustofu felst í að sinna málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir út frá samkomulagi ríkis og sveitarfélaga. Í ljósi þessa nýja verkefnis mun mikill hluti starfsins felast í mótun og þróun á þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun, rekstur og skipulagning sviðsins.

  • Þróun, uppbygging og framkvæmd á starfsemi sem heyrir undir sviðið.

  • Samstarf, upplýsingamiðlun og stuðningur við önnur svið stofnunarinnar.

  • Hluti af framkvæmdastjórn BOFS sem ber ábyrgð á stefnumótun og ákvörðunum tengdum rekstri stofnunarinnar.

  • Starfsmannamál innan sviðsins, ábyrgð á starfslýsingum, ráðningum og launaákvörðunum.

  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi ásamt samskiptum við ráðuneyti og önnur stjórnvöld.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.

  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni.

  • Farsæl reynsla af stjórnun og mannaforráðum.

  • Þekking og/eða reynsla af þeim málaflokkum sem lúta að hlutverki stofnunarinnar, einkum og sér í lagi þjónusta við börn í viðkvæmri stöðu.

  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð.

  • Framúrskarandi færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.

  • Þekking og/eða reynsla af stefnumótun og innleiðingu nýrra verkefna kostur.

  • Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur.

  • Þekking og reynsla af rekstri kostur.

Advertisement published31. October 2025
Application deadline18. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Borgartún 21*, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags