UMF ÞÓR & ÆGIR
UMF ÞÓR & ÆGIR
UMF ÞÓR & ÆGIR

Framkvæmdastjóra UMF Þórs og Knattspyrnufélagsins Ægis

Íþróttafélögin UMF Þór og Knattspyrnufélag Ægis í Ölfusi leita að öflugum, framsýnum og skipulögðum framkvæmdastjóra til að leiða daglegan rekstur félaganna og styðja við áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í sveitarfélaginu. Starfið er fjölbreytt, lifandi og krefst bæði sjálfstæðis og góðrar hæfni í samskiptum. Um er að ræða 80% starf og ráðningatími til reynslu út árið 2026. Umsóknarfrestur til 24.maí 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur og yfirumsjón með starfsemi félaganna.
  • Virk samskipti við formenn, stjórnir, þjálfara og foreldra.
  • Eftirlit með starfsemi aðildarfélaga og faglegur stuðningur við mótshald og aðra viðburði.
  • Umsjón með kynningamálum og upplýsingaflæði.
  • Samskipti við sérsambönd og landssamtök (KKÍ,KSÍ,HSK,UMFÍ,ÍSÍ o.fl.) og þingboð.
  • Styrkjaleit og aðstoð við umsóknir í styrktarsjóði, bæði innlenda og erlenda.
  • Yfirumsjón með greiðslu- og skráningarkerfum (t.d. Abler).
  • Fræðsla og stuðningur við sjálfboðaliða og þjálfara.
  • Markaðssetning, kynning og efling ímyndar íþróttanna í Ölfusi.
  • Eftirfylgni með jafnréttisstefnu deilda og stuðningur við fyrirmyndarfélagaferli ÍSÍ.

Önnur tilfallandi verkefni sem stjórnir félaganna fela framkvæmdastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði íþrótta, stjórnunar eða skyldum greinum er æskileg.
  • Reynsla af rekstri íþrótta- eða félagasamtaka er mikilvæg; reynsla af viðburðastjórnun er kostur.
  • Góð tölvukunnátta
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæð þjónustulund og hæfni til að leiða verkefni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt.

Önnur reynsla sem nýtist í starfi er metin til tekna.

Advertisement published2. May 2026
Application deadline24. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hafnarberg 41, 815 Þorlákshöfn
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.Public relationsPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Event managementPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags