
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Frístundaleiðbeinandi í tómstundastarfi, Birta og Salka
Hefur þú áhuga á leirlist? Ert þú laginn í höndunum og átt auðvelt með að umgangast fólk? Þá erum við að leita að þér!
Fræðslu- og lýðheilsusvið óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda í félags- og tómstundastarf í Birtu og Sölku sem eru félagsmiðstöðvar fólksins, fyrir fullorðna (18+). Þær eru staðsettar í Víðilundi 22 og Bugðusíðu 1.
Starfshlutfall er 80% og er um ótímabundið starf að ræða.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst en alltaf er um samkomulagsatriði að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hafa heildarsýn yfir starfsemi staðarins samkvæmt skipulagi námskeiða og opins starfs með áherslu á yngri hóp staðarins 18 – 50 ára.
- Gera styttri starfsáætlanir og skipuleggja daglegt starf í samráði við aðra starfsmenn og almenna framkvæmd fyrir tómstundastarfið t.d. auglýsingar.
- Skipuleggja og leiðbeina á námskeiðum og í opnu starfi.
- Hefur umsjón með leirstofu og leirnámskeiðum ásamt öðrum starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla á sviði smíða, myndlistar, leirlistar, hannyrða eða öðru handverki er krafa.
- Áhugi á því að vinna með leir er krafa.
- Reynsla á sviði myndlistar er kostur.
- Góð tölvukunnátta nauðsynleg t.d. við gerð bæklinga og vinnu við samfélagsmiðla.
- Starfið krefst sjálfstæðis og frumkvæðis í vinnubrögðum.
- Samskiptafærni, sveigjanleiki og rík þjónustulund.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Hreint sakavottorð.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published3. February 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
ReliabilityProfessionalismQuick learnerPublic speakingProactiveCreativityPositivityTeachingHuman relationsIndependencePlanningFlexibilityTeam workMeticulousnessCustomer servicePatience
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Aðstoðarforstöðumaður frístundar í Borgarbyggð - GBF-deild
Borgarbyggð

Leiðbeinendur í Vinnuskóla Borgarbyggðar
Borgarbyggð

Flokkstjórar í Vinnuskóla Borgarbyggðar
Borgarbyggð

Flokkstjóri - Smíðavöllur
Sumarstörf - Kópavogsbær

Starfsmaður í frístund óskast
Suðurhlíðarskóli

Aðstoð við fötluð börn og ungmenni í sumarstarfi
Mosfellsbær

Flokksstjórar í Vinnuskóla Mosfellsbæjar
Vinnuskóli Mosfellsbæjar

Aðstoðarmaður umsjónarmanns á frístundaheimilið Urriðakot
Urriðaholtsskóli

Frístundaleiðbeinandi í Hörðuvallaskóla
Hörðuvallaskóli

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær