Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli

Aðstoðarmaður umsjónarmanns á frístundaheimilið Urriðakot

Laus er til umsóknar staða aðstoðarmanns umsjónarmanns í 100% starfi í frístundaheimilinu Urriðakoti í Urriðaholtsskóla. Urriðakot þjónar tæplega 300 börnum í 1.-4. bekk og veitir þeim og foreldrum þeirra heildstæða og faglega frítímaþjónustu í samþættu skóla- og frístundastarfi.

Í Urriðaholtsskóla eru rúmlega 600 nemendur frá 1 árs og upp í 10. bekk, þar af um 530 grunnskólanemendur og þar starfa 180 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.urridaholtsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning og umsjón með faglegu starfi og daglegum rekstri Urriðakots í samstarfi við umsjónarmann.
  • Samskipti og samstarf við skólann, félög og aðra þá sem bjóða upp á tómstundastarf fyrir börn
  • Samstarf og samskipti við foreldra og starfsfólk skólans
  • Upplýsinga- og kynningarstarf
  • Staðgengill umsjónarmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu t.d. í tómstunda- og félagsmálafræðum eða sambærileg menntun æskileg
  • Reynsla af starfi á frístundaheimili æskileg
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Almenn tölvukunnátta auk skipulags- og stjórnunarhæfileika
Advertisement published29. January 2026
Application deadline13. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Professions
Job Tags