Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Forstöðumanneskja Innkaupa

Sem forstöðumanneskja Innkaupa berð þú ábyrgð á stefnu, uppbyggingu og árangri einingarinnar. Þú munt leiða teymi sérfræðinga sem sinnir innkaupum, útboðum, samningastjórnun, birgðastýringu og vöruhýsingu fyrir félög Orkuveitunnar. Þú verður hluti af stjórnendateymi Fjármálasviðs félagsins og tekur virkan þátt í mótun stefnu og forgangsröðun innan sviðsins, auk þess að styðja við markmið Orkuveitunnar í heild.

Við leitum að manneskju sem hefur náð umtalsverðum árangri í stjórnunarhlutverki, hefur næmt auga fyrir tækifærum til umbóta í innkaupaferlum og nýtur þess að vinna með fjölbreyttum hópi samstarfsaðila. Mikilvægt er að viðkomandi sé lausnamiðuð, búi yfir sterkri samskiptafærni og hafi metnað til að efla fagmennsku í innkaupum og þróa skilvirka og gagnsæja verkferla

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun og innleiðing innkaupastefnu í samræmi við markmið Orkuveitunnar 

  • Yfirumsjón með útboðum og samningagerð 

  • Tryggja að innkaup uppfylli lög og reglur um opinber innkaup 

  • Greining og hagræðing í aðfangakeðju 

  • Samskipti og samstarf við birgja og hagaðila 

  • Leiðtogahlutverk og ábyrgð á uppbyggingu og þróun innkaupateymis 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Farsæl reynsla af stjórnun og leiðtogahlutverki 

  • Hæfni til að efla starfsfólk og skapa sterka liðsheild 

  • Reynsla af innkaupum, útboðum og samningastjórnun 

  • Þekking á regluverki um opinber innkaup er kostur 

  • Sterk greiningar og samskiptafærni 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 

Advertisement published2. March 2026
Application deadline15. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags