Vopnafjarðarhreppur
Sveitarfélagið er drifið áfram af öflugum hópi starfsfólks víða í samfélaginu. Hjarta stjórnsýslunnar er skrifstofa Vopnafjarðarhrepps. Hjá Vopnafjarðarhreppi starfar öflugur hópur fólks. Fólk úr öllum áttum með ólíkan bakgrunn og uppruna.
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar
Leitum að metnaðarfullum einstaklingi í starf forstöðumanns þjónustumiðstöðvar Vopnafjarðarhrepps. Starfið felst m.a. í að tryggja að þjónusta við stofnanir og íbúa sveitarfélagsins sé veitt á faglegan og skilvirkan máta. Að hafa umsjón með eignum sveitarfélagsins, eignasjóði, gatnakerfi, götulýsingu & vatnsveitu og fara með yfirumsjón með fyrirkomulagi sorp- og úrgangsmála í sveitarfélaginu sem og skipulagningu vinnuskólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur þjónustumiðstöðvar, stafsmannahald, skipulagning verkefna og verkstjórn.
- Umsjón og eftirlit með verklegum framkvæmdum eignasjóðs, nýframkvæmdum sem og viðhaldi á þeim sviðum sem undir hann heyra í samvinnu við sveitarstjóra.
- Eftirlit með fasteignum sveitarfélagsins, þ.m.t. félagslegu húsnæði í samráði við forstöðumenn stofnana og umsjónarmenn fasteigna.
- Umsjón og ábyrgð á öllum tæknibúnaði sem tilheyrir þjónustumiðstöð sveitarfélagsins.
- Umsjón með lóðum og lendum sveitarfélagsins.
- Ábyrgð á viðhaldsverkefnum eigna sveitarfélagsins
- Skipulagning og umsjón með snjómokstri.
- Ábyrgð á öryggismálum sveitarfélagsins ásamt sveitarstjóra.
- Skipulag á starfsemi hafnarinnar og umsjón með daglegri starfsemi og verkefnum hafnarvarða.
- Situr fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs.
- Skipulagning vinnuskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þekking á rekstri er kostur.
- Stjórnunarreynsla er kostur sem og hæfni til að leiðbeina öðrum.
- Góð þekking á verklegum framkvæmdum er æskileg.
- Tölvufærni m.a. Outlook, Word og Excel er mikilvæg.
- Rík þjónustulund og jákvætt hugarfar.
- Skipulagshæfni, metnaður og vandvirkni.
- Stundvísi og reglusemi.
- Umsækjandi skal hafa hreint sakavottorð og má ekki hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn ákvæðum XXII. kafla, 211. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Advertisement published11. September 2024
Application deadline1. October 2024
Language skills
IcelandicExpert
Location
Hamrahlíð 15, 690 Vopnafjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Sælkerabúðin - Verslunarstarf
Sælkerabúðin
Meiraprófsbílstjóri (Reykjanes) - CE driver wanted
Íslenska gámafélagið
Verkamaður í umhleðslu - Austurland
Terra hf.
Flotlagnir óska eftir starfsmanni.
Flotlagnir ehf
Rafvirki
Ístak hf
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Þjónustustjóri
Kambar Byggingavörur ehf
Starfsmaður í vöruhúsi í Garðabæ
DHL Express Iceland ehf
Aðstoðarmaður
Vélvík ehf
Stálsmiðir og uppsettningamenn
Stál og Suða ehf
Pípari/Plumber
Securitas
Smíðar og viðhald / Construction and maintenance
VHE