Forstöðumaður meðferðarheimilis á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa leitar að framsæknum leiðtoga sem hefur þekkingu á málefnum barna og hæfni til að leiða nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga á Farsældartúni í Mosfellsbæ. Um er að ræða meðferðarheimili sem veitir börnum 12-18 ára sérhæfða meðferð og greiningu vegna alvarlegs hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu.
- Dagleg stjórnun og rekstur meðferðarheimilisins.
- Ábyrgð á framkvæmd á faglegu meðferðarstarfi á heimilinu.
- Ábyrgð á þróun meðferðarstarfs innan heimilisins í samráði við framkvæmdastjóra meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu.
- Ábyrgð á samskiptum meðferðarheimilisins út á við og samstarfi við barnaverndarþjónustu og aðra lykilaðila í meðferð fjölskyldu og barns.
- Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun innan stofnunarinnar.
- Fer með mannaforráð.
-
Meistarapróf í sálfræði, félagsráðgjöf eða uppeldisfræði.
-
Reynsla af meðferðarstarfi með börnum með alvarlegan hegðunarvanda og fjölskyldum þeirra.
-
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur.
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og geta og vilji til að hvetja aðra til árangurs.
-
Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum.
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg, önnur tungumálakunnátta er kostur.
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktarstyrkur