Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Flæðisstjóri / Rafvirki Farangurskerfis

Viltu gegna lykilhlutverki í því að tryggja öruggan og hnökralausan rekstur stærsta flugvallar landsins? Við leitum að lausnamiðuðum og þjónustuliprum einstaklingi í spennandi starf flæðisstjóra farangurskerfis á Keflavíkurflugvelli.

Í þessu starfi færð þú tækifæri til að sinna mikilvægum þáttum í rekstri flugstöðvarinnar með fókus á öryggi, áreiðanleika og tæknilega færni. Starfið heyrir undir teymi sem sér um rekstur og viðhald farangurskerfa og gegnumlýsingabúnaðar sem hefur bein áhrif á upplifun farþega.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Helstu verkefni:

  • Viðhald farangurskerfis og gegnumlýsingavéla samkvæmt viðhaldsáætlun
  • Reglulegt eftirlit með farangurskerfi og gegnumlýsingabúnaði
  • Bilanagreining og þátttaka í úrlausn bilana
  • Þrif og umhirða á búnaði
  • Skráning viðhaldssögu og tilkynningar um notkun varahluta
  • Stuðningur við uppsetningu og innleiðingu eigna
  • Þátttaka í viðhaldi annarra eigna eftir þörfum
  • Samskipti við afgreiðsluaðila og samstarfsaðila
  • Önnur tilfallandi verkefni í tengslum við rekstur og öryggi búnaðar

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í rafvirkjun eða sambærileg menntun/reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af iðnstýringum
  • Jákvætt viðhorf, góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Vilji til að taka þátt í bakvöktum þegar reynsla hefur byggst upp

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Skúli Pálsson, [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Advertisement published18. February 2026
Application deadline3. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags