Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag

Fjölbreytt sumarstörf

Ertu að leita þér að áhugaverðu starfi? Þá gætum við haft starfið fyrir þig.

Okkur vantar stuðningsfulltrúa í sumarstarf, bæði í búsetu þar sem um er að ræða vaktavinnu og í vinnu og virkni og þá er unnið í dagvinnu. Einnig í störf í eldhúsi í dagvinnu.

Við hjá Ási Styrktarfélagi erum með íbúðarkjarna víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og tvo vinnustaði fyrir fatlað fólk í Stjörnugróf og í Ögurhvarfi.

Við veitum fólki með fötlun fjölbreytta og metnaðarfulla þjónustu og erum með framsækinn starfsmannahóp og góðan starfsanda sem skilar sér í faglegu og áhugaverðu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að veita fötluðum starfsmönnum/íbúum aðstoð eftir þörfum varðandi vinnu, umönnun, heimilislíf,  félagslega þætti, sjálfshjálp og boðskipti.

Starfsfólk þarf að setja sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður fatlaðs fólks.

Starfsfólk þarf að búa yfir hæfni til að leiðbeina og aðstoða við persónulegar þarfir.

Menntunar- og hæfniskröfur

Það er kostur að hafa reynslu af sambærilegum störfum.

Jákvæðni, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum skiptir öllu máli. 

Til þess að geta aðstoðað fólk eftir þörfum þá þarf að vera til staðar íslenskukunnátta og líkamlegt og andlegt hreysti.  

Við ráðum eingöngu starfsfólk með hreint sakavottorð sem hefur náð 20 ára aldri. 

Fríðindi í starfi

Vinnutímastytting

Advertisement published21. April 2026
Application deadline18. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Víðihlíð 5 - 11
Eldhús, Ögurhvarf 6
Ögurhvarf 6, 203 Kópavogur
Auðarstræti 15, 105 Reykjavík
Háteigsvegur 6, 105 Reykjavík
Kirkjubraut 20
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags