
Alcoa Fjarðaál
Álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði hóf starfsemi árið 2007. Fjarðaál er eitt af nútímalegustu og tæknilega fullkomnustu álverum heims og er fyrirmynd hvað varðar umhverfisvernd og jafnréttismál. Álverið er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári.
Álver Alcoa Fjarðaáls er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Gildi okkar eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum. Við höfum stöðugar umbætur að leiðarljósi og leggjum áherslu á þátttöku allra í umbótavinnu. Við viljum líka hafa gaman í vinnunni og láta gott af okkur leiða í samfélaginu á Austurlandi.
Samkeppnishæf launakjör og aðbúnaður til fyrirmyndar
Fjarðaál greiðir samkeppnishæf laun og aðbúnaður starfsmanna er til fyrirmyndar. Við fáum meðal annars ókeypis akstur til og frá vinnu og frítt fæði í frábæru mötuneyti. Við erum með öflugt mannauðsteymi og höfum okkar eigin heilsugæslu og aðgang að Velferðarþjónustu Heilsuverndar.
Fjölbreytt störf og mikil tækifæri til starfsþróunar
Fastráðnir starfsmenn Fjarðáls eru um 540 og þar að auki starfa um 250 manns á vegum annarra fyrirtækja í álverinu. Störfin hjá Fjarðaáli eru afar fjölbreytt og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Móðurfélagið Alcoa Corporation er leiðandi í áliðnaði á heimsvísu og þar eru líka tækifæri til starfsþróunar.

Greiningasérfræðingur / Financial Analyst
Í þessu starfi, sem er unnið á starfstöð Fjarðaáls, sinnir þú kostnaðar- og fjármálagreiningu og skýrslugerð fyrir stjórnendur og styður við ákvarðanatöku í rekstri álversins. Þú greinir fjárhagsgögn til að veita skýra innsýn í reksturinn og styður við áætlanagerð og gerð spáa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna og skil á upplýsingum um framleiðslu og kostnað til að tryggja samræmi milli rekstrar- og bókhaldsupplýsinga.
- Greina fjárhagsáætlanir og spár, útskýra frávik með skýrum hætti, greina tækifæri og fjárhagslegan árangur.
- Gera ársáætlanir, ársfjórðungsspár, framleiðslu- og útflutningsspár og taka saman fjárhagsupplýsingar sem nýtast stjórnendum álversins við ákvarðanatöku.
- Yfirfara framleiðsluskýrslur og fjárhagsfærslur, viðhalda nákvæmri skráningu og fylgja innri ferlum.
- Styðja við innri og ytri endurskoðun og taka þátt í verkefnum sem viðhalda, bæta eða þróa fjármála- og reikningsskilaferli.
- Vinna með hagaðilum í rekstri að því að umbreyta flóknum fjárhagsupplýsingum í hagnýtar stjórnendaupplýsingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða í fjármálum, reikningshaldi, hagfræði, fjármálaverkfræði eða öðru sem nýtist í starfi.
- Reynsla við kostnaðar- og fjármálagreiningu, skýrslugerð fyrir stjórnendur og gerð fjárhagsáætlana og spáa.
- Góð færni í Excel og stafrænni tækni og geta til að vinna af nákvæmni með flókin fjárhags- og framleiðslugögn.
- Hagnýt þekking á reikningsskilareglum og geta til að styðja við nákvæma skýrslugerð, eftirlit og kröfur vegna endurskoðunar.
- Mjög góð enskukunnátta og hæfni til að kynna niðurstöður fjármálagreininga á skýran hátt fyrir hagaðilum, bæði innan og utan fjármálasviðs.
- Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða verkefnum og bera ábyrgð á skilum þeirra á réttum tíma. Reynsla af því að leiðbeina sérfræðingum og styðja við þróun þeirra er kostur.
Fríðindi í starfi
- Okkar menning: Við höfum sterk gildi að leiðarljósi – störfum af heilindum, náum framúrskarandi árangri, sýnum fólki umhyggju og leiðum af hugrekki.
- Öryggi í fyrirrúmi: Öryggi er ekki aðeins forgangsmál – það er hluti af okkar grunngildum. Við upphaf og lok hvers verks höfum við að leiðarljósi að vernda það sem skiptir máli.
- Velferð starfsfólks: Aðgangur að Velferðartorgi þar sem þú getur leitað til reyndra fagaðila eftir stuðningi og ráðgjöf, í fullum trúnaði.
- Starfsþróun: Við gefum þér svigrúm til að vaxa, kanna nýja möguleika og byggja starfsferil á þínum áhuga.
- Samkeppnishæf kjör: Við bjóðum samkeppnishæf laun og fríðindi sem endurspegla áherslu okkar á að meta hæfileika þína að verðleikum og stuðla að vellíðan þinni.
- Staður þar sem þú vilt vera: Við höfum ítrekað hlotið viðurkenningu sem eitt af bestu fyrirtækjunum til að starfa hjá. Við bjóðum upp á öruggt starfsumhverfi þar sem virðing er í fyrirrúmi.
Advertisement published20. November 2026
Application deadline4. December 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Hraun 158199, 731 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (9)

Skrifstofustjóri
Rúko

Sérfræðingur í fasteignamati og þróun matsaðferða
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Bókari
Norðanfiskur ehf.

Forstöðumaður Fjárhagsdeildar
Landsbankinn

Fjármálastjóri FSÍ
Fimleikasamband Íslands

Tæknilegur bókari
Sessor

Sérfræðingur í rekstrar- og sjálfbærniáhættu
Arion banki

Director Finance, Fish
JBT Marel

Bókhald / Fjármál
Mögnum